Gamla - Æskulýðs- og tómstundaráð
Fundargerð æskulýðs- og tómstundaráðs 94
94. fundur
Fundur haldinn í æskulýðs- og tómstundaráði Hornafjarðar fimmtudaginn
15. nóvember 2007 kl. 17:00 í fundarsal Ráðhúss.
Mætt voru: Helga Lucía Bergsdóttir, Björn Sigfinnsson, Gestur Halldórsson, Helga Vilborg Sigjónsdóttir, Miralem Haseta og Haukur H. Þorvaldsson, æskulýðs - og tómstundafulltrúi.
Formaður setti fund og bauð ráðsfólk velkomið.
Gengið var til dagskrár:
1. Skipan í ungmennaráð Hornafjarðar
Bæjarstjórn samþykkti erindisbréf um skipan Ungmennaráðs Hornafjarðar á fundi sínum 1.nóvember og beindi því til æskulýðs- og tómstundaráðs að kalla ráðið saman til fyrsta fundar. Ráðið var sammála um að boða til fundar strax eftir áramót. Rætt um skipan í ráðið og starfsmanni falið að ganga frá við Umf. Sindra um skipan fulltrúa félagsins í það og eins að leita eftir við ungmenni utan skóla að taka þar sæti.
2. Fjárhagsáætlun 2008
Farið var yfir fjárhagsáætlun til stofnana sem heyra undir æskulýðs- og tómstundaráð og áætlaða styrkupphæð. Engar athugasemdir komu fram frá ráðinu.
3. Félagslíf grunnskólanema
Haukur greindi frá því að starfshópur um úttekt og tillögur er varða félagslíf grunnskólanema hefði haldið þrjá formlega fundi og einn almennan fund. Árni Guðmundsson aðjúnkt við KHÍ mætti á almenna fundinn ásamt því að eiga sérstakann fund með starfshópnum.
4. Styrkur úr Sérsjóð
Ráðið ákvað að styrkja Akstursíþróttafélag Austur-Skaftafellssýslu um 100.000 kr. af styrkveitingu ársins. Akstursíþróttafélag Austur-Skaftafellssýslu hefur stigið stórt skref til eflingar jaðaríþrótta á Hornafirði.
Þá var ráðið sammála um að veita Ísjökunum í 7. bekk í Grunnskóla Hornafjarðar styrk úr Sérsjóði að upphæð 100.000 kr. vegna þátttöku í móti erlendis. Ísjakarnir unnu til fyrstu verðlauna í Legókeppni grunnskólanna fyrir skemmstu og með þessu vill ráðið styðja við starf þeirra og færa þeim hamingjuóskir með árangurinn.
5. Önnur mál
Haukur greindi frá því að um áramót hætti starfsmaður félagsmiðstöðvar. Hefur hann rætt við skólameistara FAS að nemar á félagsfræðibraut skólans fengju það verkefni í náminu að sjá um rekstur félagsmiðstöðvarinnar fram á vor. Tók skólameistari þessu vel og er verið að vinna í málinu. Ráði var ánægt með að það yrði skoðað nánar.
Næsti fundur ráðsins verður haldinn fimmtudaginn 16. janúar 2008
Fundi slitið kl. 19:00.


