Fundargerð atvinnumálanefndar 46
46. fundur
Fundur haldinn í ráðhúsi, miðvikudaginn 21. janúar 2009 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu: Ásgrímur Ingólfsson, Eyjólfur Guðmundsson, Gauti Árnason, Stephen Róbert Johnson, Hjalti Þór Vignisson,
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri
Dagskrá:
1. 200804057 - Atvinnu- og rannsóknarsjóður
Nefndarmenn ræddu um í upphafi hversu fjölbreyttar, góðar og margar umsóknir hefðu borist í atvinnu- og rannsóknasjóð og í verkefið smáframleiðsla á matvælum. Nefndarmenn vöktu athygli á hugsanlegu vanhæfi sínu til að fjalla um tilteknar umsóknir og tóku ekki þátt í afgreiðslu þeirra.
Eftirfarandi umsókir í atvinnu- og rannsóknasjóð voru samþykktar:
Þróun fuglaferðaþjónustu í Ríki Vatnajökuls 600.000
Þróun á fjallaferðaþjónustu og fjallamenningu í Ríki Vatnajökuls 600.000
Söguslóð á suðausturlandi 500.000
Heilsulindir í Hoffelli 500.000
Uppbygging Fólkvangs á Melatanga 500.000
Mypressues 400.000
Húsdýragarður í Hólmi á Mýrum 400.000
Gerð viðskiptaáætlunar um framleiðslu áfengis úr úrgangskartöflum 300.000
Heilsuefling 250.000
Efling starfsemi og frekari uppbygging sýninga í Þórbegssetri 250.000
Víkingar af lífi og sál 150.000
Líf og störf í Öræfum á síðustu öld 150.000
Saga humarveiða- og vinnslu á Hornafirði 150.000
Hönnun á prjónamunstri 150.000
Höfn - Þéttbýlið við Þjóðgarðinn. 150.000
Álftarransóknir í Austur-Skaftafellssýslu 150.000
Samtals: 5.200.000
Eftirfarandi umsóknir í verkefnið smáframleiðsla á matvælum voru samþykktar:
Nýjar afurðir úr bleikju til smásölu 240.000
Frostþurrkaðar kryddjurtir frá Dilknesi 240.000
Lúra 240.000
Nautakjötsafurðir frá Seljavöllum 240.000
Heitreyktur áll í neytendaumbúðum 220.000
Sýrt grænmeti frá Hólabrekku 240.000
Framleiðsla á humarsoði og þróun afurða í neytendapakkningar 200.000
Framleiðsla á rauðlaukssultu fyrir neytendamarkað 240.000
Heitreyktar andabringur 240.000
Humarsoð til smásölu 240.000
Jöklaís - þróun á staðbundnu bragðefni til notkunar í ísframleiðslu 240.000
Fullvinnsla svínakjöts frá vistvænu búi 240.000
Þokulamb frá Smyrlabjörgum 240.000
Náttúru sterkur (fullvinnsla folalda- og hrossakjöts) 240.000
Samtals: 3.300.000
Samþykkt að fela Matís umsjón með greiðslu styrkjanna í verkefninu Smáframleiðsla á matvælum.
Starfsmanni falið að koma á samningi við alla styrkþega þar sem tiltekið yrði í hvaða verkþætti styrkir atvinnumálanefndar færu og að greitt yrðu út samkvæmt framvindu.
2. 200804056 - Staða á atvinnuleysisskrá
Kom fram að 30 manns séu á atvinnuleysisskrá. Hjalti upplýsti að hann hafi óskað eftir fundi með Vinnumálastofnun um málið. Atvinnumálanefnd er sammála um að setja á fund þegar búið er að greina ástandið betur.


