Fundargerð bæjarstjórnar 159
159. fundur
Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, mánudaginn 10. október 2010, kl. 16.00 í Nýheimum.
Mætt voru: Reynir Arnarson, Ásgerður K. Gylfadóttir, Kristján S. Guðnason, Ásgrímur Ingólfsson, Björn Ingi Jónsson, Guðrún Ása Jóhannsdóttir og Árni Rúnar Þorvaldsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri framkvæmda- og fjármálasviðs.
1. Fundargerðir (upptaka)
· Bæjarráð Hornafjarðar, 512. fundur, 6. september 2010.
Hjalti Þór Vignisson fjallaði um fyrstu tillögur að fjárlögum ríkisins fyrir árið 2011 og hvaða áhrif fyrstu tillögur hafa á HSSA.
Eftirfarandi bókun lögð fram um fjárveitingar til HSSA:
Bæjarstjórn Hornafjarðar mótmælir þeim áformum sem felast í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2011 um að skerða grunnþjónustu í heilbrigðisþjónustu á Hornafirði. Frá því að fjárlögin voru kynnt hefur verið skoðað hvernig takast megi á við áform ríkisstjórnarinnar. Í stuttu máli er ljóst að nái framlögin fram er gengið nærri velferðarþjónustu á Hornafirði og almennri heilsugæslu.
Á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands er engin skurðstofa heldur eru sjúkrarúm fyrir langveika, bráðaþjónusta fyrir veika og slasaða, fæðingar og sængurlega, öldrunarlækningar, líknandi meðferð o.s.frv. sem verður að telja mikilvæg þjónusta fyrir viðkomandi og aðstandendur þeirra. Minna skal á að fjarlægð frá Hornafirði á næstu sjúkrahús er um og yfir 300 km.
Bæjarstjórn Hornafjarðar skorar á heilbrigðisráðherra og þingmenn að endurskoða fjárveitingar til Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands þannig að hægt verði að standa áfram undir grunnþjónustu í heilbrigðismálum á Hornafirði.
Hjalti fjallaði um málefni fatlaðra, ræddi hann um nýjan þjónustusamning milli ríkis og sveitarfélagsins í málaflokknum. Hjalti fjallaði einnig um ljósleiðarakerfis í Öræfum.
Björn Ingi fjallaði um fyrstu tillögur að fjárlögum ríkisins fyrir árið 2011, ræddi hann um mikilvægi þess að standa vörð um grunnþjónustuna, Björn Ingi fjallaði einnig um ljósleiðarakerfi í Öræfum, ræddi hann að stefna ætti að því að ljósleiðaravæða allt sveitarfélagið í framtíðinni.
Reynir fjallaði um ljósleiðarakerfis í Öræfum, óskaði hann notendum ljósleiðarakerfisins til hamingju með það og tók hann undir orð Björns Inga um kosti ljósleiðaravæðingar í sveitarfélaginu.
Árni Rúnar fjallaði um ljósleiðarakerfi í Öræfum, óskaði hann notendum kerfisins til hamingju með það. Hann tók undir orð Björns Inga og Reynis um uppbyggingu á ljósleiðarakerfi í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Tillaga bæjarstjóra borin fram til samþykktar og var hún samþykkt samhljóða.
Fundargerð borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
· Bæjarráð Hornafjarðar, 513. fundur,13. september 2010.
Hjalti fjallaði um húsnæðismál í sveitarfélaginu, gerði hann grein fyrir þeirri vinnu sem farið hefur fram síðustu misseri. Hjalti fjallaði einnig um jöfnunarsjóð sveitarfélaga, ræddi hann um mikilvægi þess að áherslum sveitarfélagsins verði komið á framfæri til starfshóps sem vinnur nú að endurskoðun á reglum jöfnunarsjóðsins. Þá fjallaði hann einnig um sameiningarmál sveitarfélaga, gerði hann grein fyrir fundum sem fram hafa farið um málið á vegum Sambands sunnlenskra sveitarfélaga.
Björn Ingi fjallaði um sameiningarmál sveitarfélaga, ræddi hann um mikilvægi þess að skoða alla kosti og galla sameiningarmála.
Reynir fjallaði um sameiningarmál sveitarfélaga, ræddi hann um mikilvægi þess að horfa einnig til samvinnu milli sveitarfélaga.
Árni Rúnar fjallaði um málefni fatlaðra, ræddi hann um stýringu á þjónustunni og hvort sú stýring bætir þjónustu við notendur þjónustunnar, Árni Rúnar fjallaði einnig um sameiningarmál, ræddi hann um mikilvægi þess að sameiningarmál sveitarfélaga fái góða og málefnalega umræðu, Árni Rúnar fjallaði einnig um endurskoðun á reglum jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, ræddi hann um mikilvægi þess að sveitarfélagið komi sínum sjónarmiðum á framfæri við starfshóp sem endurskoðar nú reglurnar.
Ásgrímur fjallaði um sameiningarmál sveitarfélaga.
Árni Rúnar fjallaði um sameiningarmál sveitarfélaga.
Hjalti fjallaði um sameiningarmál, ræddi hann um mikilvægi þess að sameining eigi að snúast um bætta þjónustu við íbúa.
Björn Ingi fjallaði um sameiningamál sveitarfélaga, ræddi hann um mikilvægi þess að vera framsýn og skoða sameiningarmál með opnum hug.
Reynir fjallaði um sameiningarmál sveitarfélaga, ræddi hann um fyrri sameiningar hreppanna frá 1994.
Árni Rúnar fjallaði um sameiningarmál sveitarfélaga, ræddi hann um áhrif sveitarstjórnarmála ef til aðildar að Evrópusambandinu kæmi.
Hjalti fjallaði um sameiningarmál sveitarfélaga, ræddi hann um væntanleg áhrif á sveitarfélög ef til aðildar að Evrópusambandinu kæmi.
Árni Rúnar fjallaði um sameiningarmál sveitarfélaga.
Fundargerð borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
· Bæjarráð Hornafjarðar, 514. fundur, 19. september 2010.
Árni Rúnar fjallaði um fundargerð skóla- íþrótta- tómstundanefndar, ræddi hann um málefni forvarna í Sveitarfélaginu Hornafjarðar. Þá gerði hann málefni leikskóla sveitarfélagsins að umtalsefni og lagði fram eftirfarandi tillögu bæjarfulltrúa Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks um leikskólamál
Bæjarstjórn felur skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd að hefja þegar vinnu við endurskoðun á rekstrarumhverfi leikskóla í sveitarfélaginu. Í ljósi nemendafækkunar og góðrar reynslu af sameiningu grunnskólans skal nefndin sérstaklega kanna kosti sameiningar leikskólanna undir einni stjórn með hagræðingu í rekstri og öflugt skólastarf að leiðarljósi. Nefndin skal vinna tillögur sínar í samstarfi við starfsfólk leikskólanna, foreldra og aðra hagsmunaaðila. Niðurstöður nefndarinnar skulu liggja fyrir í mars 2011.
Ásgerður fjallaði um forvarnarmál.
Hjalti fjallaði um tillögu bæjarfulltrúa Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks í leikskólamálum og ræddi hann um mikilvægi þess að forgangsraða vinnu bæjarstjórnar og starfsmanna rétt um þessar mundir, nú standi yfir mikil vinna við fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2011 og því óraunhæft að ljúka vinnu í lok mars 2011.
Reynir fjallaði um tillögu bæjarfulltrúa Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks í leikskólamálum.
Ásgrímur fjallaði um bókun bæjarfulltrúa Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks í leikskólamálum, ræddi hann einnig um forvarnamál.
Björn Ingi fjallaði um forvarnarmál.
Árni Rúnar fjallaði um forvarnarmála og um tillögu bæjarfulltrúa Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks í leikskólamálum.
Ásgerður fjallaði um tillögu bæjarfulltrúa Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks í leikskólamálum.
Hjalti fjallaði um tillögu bæjarfulltrúa Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks í leikskólamálum.
Árni Rúnar fjallaði um bókun bæjarfulltrúa Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks í leikskólamálum, lagði hann til að vinna við endurskoðun leikskólamála hefjist í byrjun janúar 2011.
Hjalti fjallaði um tillögu bæjarfulltrúa Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks í leikskólamálum, ræddi hann um mikilvægi þess að bæjarráð fái að fjalla um málið og skipuleggja störf stjórnsýslunnar til lengri tíma.
Ásgrímur fjallaði um tillögu bæjarfulltrúa Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks í leikskólamálum og ræddi hann um mikilvægi þess að taka leikskólamál til endurskoðunar um leið og tími gefst til.
Árni Rúnar fjallaði um tillögu bæjarfulltrúa Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks í leikskólamálum, ræddi hann um breytingartillögu á bókuninni.
Reynir fjallaði um tillögu bæjarfulltrúa Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks í leikskólamálum, ræddi hann um mikilvægi þess að taka leikskólamál til endurskoðunar, tímasetning þessarar vinnu þarf að samræmast öðrum verkefnum.
Björn Ingi fjallaði um tillögu bæjarfulltrúa Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks í leikskólamálum, ræddi hann um verkefnastöðu bæjarfélagsins og að mikilvæg málefni fái umfjöllun í ráðum og nefndum.
Hjalti fjallaði um tillögu bæjarfulltrúa Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks í leikskólamálum, ræddi hann um mikilvægi þess að bæjarráð fái málið til umfjöllunar og undirbúi verkefnið vel áður en ráðist verður í það.
Árni Rúnar fjallaði um tillögu bæjarfulltrúa Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks í leikskólamálum, ræddi hann um ástæðu dagsetningu bókunarinnar, einnig ræddi hann um málefni endurskoðunar á aðalskipulagi.
Hjalti fjallaði um endurskoðun aðalskipulags og gerði grein fyrir umfjöllun sem farið hefur fram í bæjarstjórn um málið.
Ásgerður bar upp tillögu um að vísa endurskoðun leikskólamála til vinnu bæjarráðs, tillaga samþykkt með fjórum greiddum atkvæðum, þrír sátu hjá.
Fundargerð borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
· Bæjarráð Hornafjarðar 515 fundur, 27. september 2010.
Fundargerð borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
· Bæjarráð Hornafjarðar 516 fundur, 04. október 2010.
Fundargerð borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
· Bæjarstjórn Hornafjarðar 158 fundur, 2. september 2010, áður samþykkt.
2. Stofnskrá Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar (upptaka)
Hjalti gerði grein fyrir helstu breytingum og lagði til að stofnskrár verði samþykktar.
Samþykkt samhljóða
3. Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2010 (upptaka)
Hjalti fór yfir endurskoðun á fjárhagsáætlun. Helstu breytingar eru að áætlað er á skatttekjur verði 61 m.kr. hærri en áður og launabreytingar verði 12 m.kr. á árinu. Rekstrarniðurstaða er áætluð 58 m.kr. betri en upphaflega var ráð fyrir gert. Samkvæmt endurskoðaðri fjárhagsáætlun verður rekstrarniðurstaðan í A – hluta 59 m.kr. í árslok og í samanteknum reikningsskilum verður niðurstaðan 101 m.kr. Veltufé frá rekstri er samtals 145 m.kr. í A-hluta og 233 m.kr. í samanteknum reikningsskilum. Handbært fé í árslok verðu 225 m.kr.
Hjalti lagði til að endurskoðuð fjárhagsáætlun fyrir árið 2010 verði samþykkt.
Reynir fjallaði um endurskoðun fjárhagsáætlunar fyrir árið 2010
Endurskoðuð fjárhagsáætlun borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
4. Fyrirspurnir (upptaka)
Engar bárust.
Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl. 18.05


