Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 57
57. fundur
Byggingar- og skipulagsnefnd 57. fundur
FUNDARGERÐ
Fundur haldinn í byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, fimmtudaginn 10. mars, 2005, kl. 17:00 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mættir voru: Ólafur Sigurðsson, Magnús Jónasson, Aðalsteinn Aðalsteinsson, Steinþór Hafsteinsson, slökkviliðsstjóri, Helgi Már Pálsson tækni- og umhverfissviði og Hákon Valdimarsson byggingarfulltrúi, .
1. Breiðabólsstaður 1
Íbúðarhúsi breytt í gistihús Sótt er, í bréfi dags. 15.12.2004, um leyfi til að breyta íbúðarhúsinu að Breiðabólsstað 1, Suðursveit, í gístihús, skv. teikn. Sveins Ívarssonar, arkitekts, dags.31. jan. 2005. Umsækjandi er Þorbjörg Arnórsdóttir, Breiðabólsstað, Hala.
Erindið samþykkt. Vakin er athygli á því að þó að talað hafi verið um gistihús í umsókn þá er þar átt við svefnpokagistingu. Umsækjandi skal hafa samráð við eldvarnarfulltrúa vegna brunavarnarmála.
2. Vagnstaðir, Suðursveit
Frístundahús Sótt er, í bréfi dags. 17.01.2005, um leyfi til að byggja frístundahús á Vagnstöðum, í tengslum við ferðaþjónustu sem þar fer fram, samkv. teikn. Páls Björgvinssonar, arkitekts, dags 11.01.2005. Teikn. A-01 Umsækjandi er Bjarni Sk. Bjarnason.
Erindið samþykkt.
3. Bær 1 í Lóni, Miðhús
Bygging frístundahúss í stað núverandi íbúðarhúss. Sótt er, í bréfi dags. 4. febr. 2005, um leyfi til að byggja frístundahús úr timbri, ásamt geymsluhúsi, að Bæ 1, Miðhúsum í Lóni, samkv. teikn. frá Teiknivangi, gerðum af Vilhjálmi Þorlákssyni og Þorsteini Magnússyni, verkfr. dags. febr. 2005. Verknr. 190-3. Húsið verður byggt á grunni (hluta hans) núv. íbúðarhúss, sem jafnframt er sótt um leyfi til að rífa. Umsækjendur eru Þorbjörg Gígja og Ottó B. Ólafsson, Naustanesi, 116 Rvík.
Erindið samþykkt með fyrirvara um verklag við jarðvegsframkæmdir, sjá bréf starsmanns Menningarmiðstöðvar, BGA, dags. 10 mars. s.l.
4. Hafnarbraut 43
Auglýsingaskilti Hótels Hafnar Sótt er, í bréfi dags. 17.11.2004, um leyfi fyrir uppsetningu nýs og endurnýjaðs auglýsingaskilis á lóð nr. 43, við Hafnarbraut, þ.e. lóð rakarastofu Ásbjörns Þ. Umsækjandi er Gísli Már Vilhjálmsson, f.h. Hótels Hafnar
Erindið samþykkt með þeirri kvöð að það verði fært fjær Hafnarbraut um 2,5 m.
5. Hornafjarðarhöfn.
Drög að reglug. Óskað er í tölvupósti frá Albert Eymundssyni. dags. 9. febr. 2005, umsagnar nefndarinnar um drög að reglugerð fyrir Hornafjarðarhöfn Lagður var fram tillaga að stærð og takmörkum hafnarinnar ásamt uppdrætti.
Ekki gerðar athugasemdir við framlögð gögn.
6. Umferðin okkar
Greinargerð lögreglunnar á Höfn. Lögð er fram, til kynningar, greinargerð lögreglunnar á Höfn, (ódagsett) um umferðar- og öryggismál á Höfn. Tekið er undir þessar athugasemdir og hvatt til þess að brugðist verði við þeim við fyrsta hentugleika. Rætt var um hámarkshraða í þéttbýlinu og hugsanlegar breytingar til lækkunar á honum t.d. 30 km/klst
Starfsmönnum tæknideildar falið að gera tillögur að nýjum hraðamörkum í bænum.
7. Dalbraut
Hraðahindranir. Bæjarráð Hornafjarðar vísar til nefndarinnar, (ódagsettu) erindi, íbúa við Dalbraut og aðliggjandi götur, þar sem að farið er fram á gerð tveggja hraðahindrana á Dalbraut, sbr. undirskriftarlista.
Mælt er með því að settar verði hraðahindrun á Dalbrautina
8. Austurbraut 1
Breyting þakkants o.fl. Sótt er, í bréfi dags. 15.02.2005. um leyfi til að breyta þakkanti íbúðarhússins að Austurbraut 1, Höfn á þann veg, að kantur á stöfnum verði síkkaður þannig, að neðri brún hans verði í láréttri línu, þ.e. svokallaður ,,hattur,, Einnig er sótt um leyfi til að bæta glugga á austurhlið hússins, með samskonmar útliti og þeir sem fyrir eru. Umsækjandi er Bjarni Gunnarsson, Austurbraut 1.
Erindið samþykkt
9. Fagurhólsmýri
Deiliskipulag. Kynnt erindi Vilhjálms Sigurðssonar og Hjálmars Péturssonar, um fyrirhugaða uppbyggingu m.t.t. ferðaþjónustu, að Fagurhólsmýri, í Öræfum, þ.e. á og við lóð verslunarhúss KASK. Bæjarráð hefur samþykkt að breyta aðalskipulaginu.
Samþykkt að fara í óverulega breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins.
10. Afgreiðsla ,,smærri mála,, sem afgreidd hafa verið frá síðasta fundi nefndarinnar
1. Jákvæð umsögn um endurnýjun vínveitingaleyfis fyrir Fosshótel Vatnajökul, Lindarbakka. Engar athugasemdir
11. Önnur mál.
- Hákon kynnti erindi sóknarnefndar Hafnar, dags. 1. mars s.l., um leyfi fyrir byggingu þjónustuhús við kirkjugarðinn á Höfn. Nefndin gerir ekki athugasemdir við erindið en óskar eftir fullnaðar gögnum áður en það verður endanlega samþykkt.
- Hákon kynnti erindi frá Eiríki Egilssyni, Seljavöllum um leyfi fyrir byggingu á nýju fjósi vestan við gamla fjósið skv. teikningum frá Byggingarþjónustu bændasamtaka Íslands, dags. 1. mars s.l. Erindið samþykkt.
- Hákon kynnti raunteikningar af Landsbanka Íslands, Hafnarbraut, teikn af m3 arkitektar dags. Nóv. 2004. Engar athugasemdir.
- Hákon kynnti breytingar á teikningum á Þorbergssetri, þar sem m.a. er stækkun á veitingasal, teikn. Sveinn Ívarsson, dags. 1.feb 2005.
- Helgi Már kynnti tillögur af breytingum á Hafnarbraut vegna endurbóta á jöklasýningu. Um er að ræða endurbætur á flóttaleiðum og þar af leiðandi útlitsbreytingum á húsnæðinu. Engar athugasemdir, en óskað eftir endanlegum teikningum.
- Helgi Már kynnti ósk landeiganda um að opna eldri námu í Almannaskarði og umfjöllun Umhverfisnefndar.
- Bæjarráð hefur falið tækni- og umhverfissviði að vinna málið áfram Nefndarmenn sammála umsögn umhverfisnefndar og farið verði í breytingu á aðalskipulagi vegna þess.
Fundi slitið 19:15


