Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 89
89. fundur
Fundur byggingar- og skipulagsnefndar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, fimmtudaginn 27. mars 2008 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Árni Rúnar Þorvaldsson, Torfi Friðfinnsson, Kristinn Óskarsson, Gunnar Páll Halldórsson, Björn Ingi Jónsson, Hákon Valdimarsson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Steinþór Hafsteinsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdarstjóri umhverfis- og tæknisviðs
1. 200802039 - Bílskúr – byggingarleyfisumsókn
Torfi Friðfinnsson vék af fundi við afgreiðslu þessa máls. Starfmenn gerðu grein fyrir umsókninni og hvaða áhrif hún hefur á núverandi göngustíg. Byggingar- og skipulagsnefnd leggur áherslu á að göngustígurinn milli Kirkjubrautar 48 og 50 verði þar áfram en beinir því jafnframt til bæjarráðs að stækka mætti lóð Kirkjubrautar 48 um 40 - 50 cm. á kostnað göngustígsins. Starfsmönnum falið að tryggja að fullnægjandi brunavörnum verði fullnægt
2. 200801024 - Nýr kirkjugarður
Árni greindi frá samþykkt sóknarnefndar um fyrirhugaða staðsetningu kirkjugarðs þar sem sóknarnefnd leggur til að stæði undir Réttarklettum verði fyrir valinu. Byggingar- og skipulagsnefnd leggur til að farið verði út í skipulagsvinnu vegna fyrirhugaðs kirkjugarðsstæðis undir Réttarklettum. Nefndin leggur áherslu á að gætt verði að nánasta umhverfi við skipulagsgerðina.
3. 200706082 – Umferðaröryggi
Haukur greindi frá tilboði frá VGK Hönnun og tillögu um að taka tilboðinu í þrepum. Byggingar- og skipulagsnefnd leggur til að taka fyrsta þrep sem felst í því að kortleggja núverandi hraðahindranir og gangbrautir ásamt ábendingum um hvar hægt er að bæta öryggi með því að draga úr umferðarhraða.
4. 200803024 – Byggingleyfisumsókn
Byggingar- og skipulagsnefnd tekur jákvætt í tillöguna. Umræður sköpuðust um hæð á umgjörð svalanna. Nefndin óskar eftir endanlegum teikningum við afgreiðslu málsins.
5. 200803023 - Hugmyndir að framkvæmdum á Hofsnesi í Öræfum.
Starfmenn greindu frá áformum Einars Sigurðssonar frá Hofsnesi og kynntu bréf Einars til byggingarfulltrúa. Byggingar- og skipulagsnefnd fagnar frumkvæði Einars og beinir til starfsmanna að svara þeim spurningum er snúa að sveitarfélaginu.
6. 200803029 - Minnisblað formanns svæðisráðs suðursvæðis um vinnu að verndarráælun fyrir suðursvæði
Árni greindi frá minnisblaði bæjarstjóra um vinnu við verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir suðursvæði. Byggingar- og skipulagsnefnd fagnar því að svæðisráðið óski eftir samstarfi og leggur áherslu á að vinna náið með svæðisráðinu í þessari vinnu.
7. 200803037 - Merkingar við framkvæmdir á umferðarmannvirkjum.
Til kynningar
8. 200803038 - Samgöngur í þágu fjöldans
Nefndin fagnar öllum tillögum er lúta að vegstyttingum á Austurlandi.
9. 200803036 - Ósk um umsagnir á frumvörpum um: Skipulagslög mál nr. 374, Mannvirki mál. nr. 375, og Brunavarnir mál 375 um flutning verkefna Brunamálastofnunar
Byggingar- og skipulagsnefnd leggur áherslu á að starfmenn fylgist vel með framvindu þessara mála og upplýsi nefndina um þær breytingar sem kunna að verða.
10. 200802030 - Frístundabændur – málefni
Starfmenn kynntu tillögur að úthlutun á landsspildum og löndum í eigu sveitarfélagsins sem ætlað er til beitar og sláttar. Nefndin fellst á tillögur að úthlutun og fyrirkomulagi og felur starmönnum að vinna áfram að málinu. Nefndin leggur til að land umhverfis og neðan við hús Landmælinga í vestur verði ekki úthlutað sem beitarlandi en lögð verði áhersla á að halda því snyrtilegu.
11. 200802037 - Neyðarútgangshurð - ósk um leyfi fyrir uppsetningu
Nefndin óskar eftir því að Björn Imsland komi á næsta fund nefndarinnar og greini frá hugmyndum að staðsetningu á fyrirhuguðum stiga.
12. Önnur mál:
Árni spurðist fyrir um vinnufund með ráðgjöfum, Haukur greindi frá að málið er í vinnslu og tillögur að dagsetningu og drög að dagsskrá verði send út fljótlega, stefnt er að fundi á laugardegi í apríl.
Björn Ingi spurði hvort sveitarfélginu bæri skylda að hafa opna efnisnámu í sveitarfélaginu. Umræður sköpuðust um efnisnámur í sveiarfélaginu.
Fleira ekki gert.


