Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 11
11. fundur
Fundur í umhverfis- og skipulagsnefndar haldinn í ráðhúsi, mánudaginn 14. mars 2011 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Ásgrímur Ingólfsson, Gunnar Páll Halldórsson, Björn Ingi Jónsson, Guðrún Ása Jóhannsdóttir, Aðalsteinn Aðalsteinsson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Steinþór Hafsteinsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri tækni og umhverfissviðs
Dagskrá:
1. 201103042 - Ósk um leyfi til niðurrifs á burstabæ að Smyrlabjörgum I vegna fyrirhugaðra byggingaframkvæmda
Sótt er um leyfi fyrir niðurrifi á burstabæ að Smyrlabjörgum I vegna fyrirhugaðra byggingarframkvæmda. Umsækjandi er Sigurbjörn Karlsson.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við það að húsið verði rifið, nefndin bendir umsækjanda á að sækja þarf um starfsleyfi fyrir niðurrifinu hjá HAUST.
2. 201103040 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir gistihúsi að Smyrlabjörgum
Sótt er um leyfi fyrir byggingu gistihúss að Smyrlabjörgum í samræmi við gögn unnum af Erlendi Birgissyni hönnuði hjá Verkfræðistofu Erlends Birgissonar ódagsettum, í stað þess húss sem rífa á niður. Umsækjandi er Sigurbjörn Karlsson.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita leyfi fyrir byggingu á gistihúsinu með fyrirvara um endanlegt samþykki HAUST og eldvarnareftirlits.
3. 201103041 - Umsókn um byggingarleyfi, breytt notkun á rými og breytingar á rými
Sótt er um leyfi fyrir breytingum á Vesturbraut 3 samkvæmt gögnum frá Gísla Má Ágústssyni dagsettum 09.03.2011, þar sem sótt er um leyfi fyrir því að breyta húsinu í gistiheimili, umsækjandi f.h Urtusteins ehf er Ágúst Gíslason.
Umræður sköpuðust um skipulag svæðisins, Haukur Ingi greindi frá því að húsið standi á svæði samkvæmt aðalskipulagi sem verslunar- og þjónustusvæði og því rúmast gisting innan þeirrar skilgreiningar. Rætt var um umferð sem þjónustan dregur að sér, nefndin telur að sú umferð verði ekki meiri en þegar húsið var nýtt undir verslun. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita leyfi fyrir breytingum á húsinu og breyttri notkun þess með fyrirvara um að endanlegar teikningar berist og samþykki HAUST og eldvarnareftirlits. Nefndin bendir á að fyrra leyfi um hringakstur umhverfis húsið falli niður við afgreiðslu þessa máls.
4. 201102011 - Önnur mál
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:30


