Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 15
Fundur Umhverfis- og skipulagsnefndar haldinní ráðhúsi, 2. ágúst 2011 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Ásgrímur Ingólfsson formaður
Hugrún Harpa Reynisdóttir varaformaður
Gunnar Páll Halldórsson aðalmaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Guðrún Ása Jóhannsdóttir aðalmaður
Haukur Ingi Einarsson (HIE) framkvæmdastjóri sviðs
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson starfsmaður tæknisviðs
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs.
Dagskrá:
| 1. |
201107013 - Ósk um leyfi til byggingar salernisaðstöðu við bílastæði námuvegar í landi Sandfells |
|
|
Rúnar kynnti málið, fram kom að landið er í umsjá Forsætisráðuneytisins. |
| |
|
|
| 2. |
201107043 - Uppbygging íbúðarhúsnæðis á Höfn |
|
|
Rúnar kynnti málið, gerði hann grein fyrir ósk umsækjanda um uppbyggingu á raðhúsi á Leirusvæði. Nefndin fagnar áhuga umsækjanda og tekur jákvætt í framlagða ósk um að breyta lóðum á svæðinu í raðhúsalóð. Starfsmönnum falið að yfirfara staðsetningar fyrir raðhús með umsækjanda. |
| |
|
|
| 3. |
200809015 - Skipting á jörðinni Uppsalir 1 |
|
|
Málinu vísað til starfsmanna. |
| |
|
|
| 4. |
201106030 - Skýrsla v. banaslyss á vegamótum þjóðvegar 1 og Hafnarvegar til umsagnar |
|
|
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við skýrsluna. Nefndin beinir því til umsjónaraðila skilta á svæðinu að farið verði í aðgerðir á svæðinu sem eru í samræmi við ábendingar og athugasemdir í skýrslunni. |
| |
|
|
| 5. |
201107045 - Athugasemd við umgengni í Nesjahverfi |
|
|
Rúnar fylgdi málinu úr hlaði. Umhverfis- og skipulagsstjóra falið að fylgja málinu eftir. Undir þessum lið kom ábending um að fjarlægja þurfi bílhræ við Bogaslóð. |
| |
|
|
| 6. |
200909003 - Byggingaframkvæmdir á lóð í Stafafellsfjöllum |
|
|
Rúnar fór yfir bréf frá Skipulagsstofnun og gerði grein fyrir málavöxtum. Umhverfis- og skipulagsstjóra falið að afla frekari gagna um fyrri byggingarreiti og lóðamörk. |
| |
|
|
| 7. |
201107040 - Beiðni um tafarlausa fjarlægingu á fjarskiptataug á Júllatúni |
|
|
Rúnar fylgdi málinu úr hlaði. Umhverfis- og skipulagsstjóra falið að fylgja málinu eftir. |
| |
|
|
| 8. |
201009060 - Ný skipulagsreglugerð |
|
|
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við nýja skipulagsreglugerð. |
| |
|
|
| 9. |
201106026 - Ný reglugerð um framkvæmdaleyfi |
|
|
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við nýja reglugerð um framkvæmdaleyfi. |
| |
|
|
| 10. |
201105024 - Ósk um leyfi til niðurrifs húsa að Hnappavöllum I |
|
|
Rúnar fylgdi málinu úr hlaði gerði hann grein fyrir umsókninni og samskiptum við Húsafriðunarnefnd. Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við niðurrif húsa á Hnappavöllum en bendir á að sækja þarf um starfsleyf fyrir niðurrifi húsana hjá HAUST. Nefndin bendir einnig á að haft verði samráð við Fornmynjavernd við niðurrif á húsunum.
Umhirða verslunarhúsnæði á Fagurhólmsmýri.
Ásgrímur vakti máls á slæmri umhirðu hússins, umhverfis- og skipulagsstjóra falið að senda bréf til eigenda þar sem óskað er eftir lagfæringum á húsinu.
Umhirða sumarhús lóðar 2 í Stafafellsfjöllum
Nefndin vakti máls á slæmri umræðu sumarhússins, umhverfis- og skipulagsstjóra falið að senda bréf til eigenda þar sem óskað er eftir lagfæringum á húsinu.
Hafnarvík - Heppa
Umræður sköpuðust um lóðamál við Heppuveg 1 og byggingarmagn á svæðinu. Starfsmönnum falið að fara yfir lóðamál og mögulega nýtingu á lóðinni með lóðarhöfum og kynna fyrir á næsta fund nefndarinnar. |
| |
|
|
| 11. |
201106008 - Ósk um umsögn á drögum að nýrri byggingarreglugerð |
|
|
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við drögin. |
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00