| 1. |
201103031 - Dýpkun í Hornafjarðarhöfn |
|
|
Birgir gerði grein fyrir fyrirhugaðri dælingu úr Höfninni. Gerði hann einnig grein fyrir lausnum til að binda fok af því svæði sem dælt verður upp á. Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við það að dælt verði upp á land innan Hafnar að því gefnu að öllum brögðum verði beitt til að hefta fok með þeim úrræðum sem rædd voru á fundinum. Svo sem með bikblöndu eða yfirkeyrslu með öðru efni.
Björn Ingi benti á að í þessum máli sýni reynslan að um mikil óþægindi er fyrir íbúa leirusvæðisins samhliða uppdælingu og fok í framhaldi af því. Ekki er alveg augljóst að lausnir sem notaðar eru á fáförnum stöðum utan þéttbýlis séu lausnir sem nothæfar eru í þéttbýli. Það þarf að vera ljóst áður en farið er á stað í uppdælingu hvernig staðið verður að heftingu foks. Einnig þarf að huga að því að uppdæling dreifist ekki út fyrir þann varnargarð sem settur var á leirusvæðinu og átti að afmarka það svæði sem dæla átti á.
|
| |
|
|
| 2. |
201008066 - Sorphirða 2-3 tunnukerfi |
|
|
Birgir gerði grein fyrir hugmyndum að breytingum á móttökustöð fyrir endurvinnsluúrgang ef til kemur tveggja tunnu kerfi, fór hann yfir hugmyndir að breytingum á húsnæði og gámaporti. Inn á fundinn komu einnig aðilar frá Efnamóttökunni hf og Gámaþjónustunni hf, Jón H. Steingrímsson, Gunnar Bragason og Sveinn Hannesson og gerðu þeir grein fyrir fyrirkomulagi tveggja tunnukerfi Dalvíkurbyggðar. Gerðu þeir einnig grein fyrir reynslu sinni af endurvinnslumálaum almennt og buðu fram aðstoð við ýmsar útfærslur og val á tækjabúnaði, skipulagi á gámaporti og uppbyggingu flokkunaraðstöðu.
Lögð fram drög að starfsleyfi fyrir urðunarstaðinn á Mel í landi Fjarðar. Starfsmönnum falið að fara yfir drög að starfsleyfi fyrir urðunarstað á mel í Landi Fjarðar með það að leiðarljósi að kanna breytingar á núverandi rekstrarfyrirkomulagi. Björn Ingi benti á að nýtt starfsleyfi muni auka rekstrarkostnað urðunarstaðarins. Bent var á mikilvægi þess að drögin verði einnig send á Djúpavogshrepp til yfirlestrar.
|
| |
|
|
| 3. |
201203009 - Hreinsunar vika 2012 |
|
|
Farið yfir skipulag hreinsunarviku í endann mars 2012. Starfsmönnum falið að undirbúa hreinsunarviku í lok mars og fyrirkomulag hennar verði eins og á síðasta ári.
|
| |
|
|
| 4. |
201112032 - Íþróttahús undir Garðshól, lok Auglýsinga tíma.(Athugasendir) |
|
|
Rúnar gerði grein fyrir málinu. Sagði hann að þrjár athugasemdir hafi borist á athugasemdatímanum. Lagði hann fram drög að svarbréfi við athugasemdunum. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir framlögð drög að svörum og vísar þeim til bæjarstjórnar og leggur til að hún geri þau að sínum. |
| |
|
|
| 5. |
201009015 - Deiliskipulag í Stafafellsfjöllum, Svör við athugasendum |
|
|
Málinu frestað til næsta fundar. Samþykkt að boða til aukafundar um málið í mars. |
| |
|
|
| 6. |
201005046 - Deiliskipulag við Jökulsárlón |
|
|
Lögð fram drög að deiliskipulagi fyrir Jökulsárlón, dagsettir í desember 2011, uppdráttur merktur D00,02, umrætt skipulag hefur að geyma svæði fyrir þjónustubyggingar en ekki hótel og gistiheimili. Einnig bréf frá lögfræðing stjórnar Sameigendafélagsins Fells dagsett 29. febrúar 2012. Umhverfis- og skipulagsnefnd óskar eftir því að deiliskipulagið verði sent til umsagnar þeirra aðila sem fram koma í lýsingu fyrir deiliskipulagið. |
| |
|
|
| 7. |
201202040 - Ósk um breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar að Lindarbakka |
|
|
Nefndin óskar eftir því að aðili skili inn fullnaðar uppdráttum. |
| |
|
|
| 8. |
201110054 - Gjaldskrár umhverfis- og skipulagsnefndar, drög |
|
|
Lögð fram drög að gjaldsskrá umhverfis- og skipulagsnefndar. Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu. |
| |
|
|
| 9. |
201203012 - Ný byggingarreglugerð 112/2012 |
|
|
Til kynningar. |
| |
|
|
| 10. |
1202057 - Kynning á bygginaráformum,flutning á Gömlubúð Kynnig |
|
|
Til kynningar. |
| |
|
|
| 11. |
201203011 - Svæði fyrir jarðveg(vegna byggingarframkvæmda) |
|
|
Til kynningar. |
| |
|
|
| 12. |
201008024 - Æfingasvæði fyrir skotveiðimenn |
|
|
Nefndin tekur jákvætt í óskina og felur starfsmönnum undirbúi og haldi kynningarfund um málið |
| |
|
|
| 13. |
201202001 - Ósk um viðræður um nýtingu gamla vatnstanksins |
|
|
Umhverfis- og skipulagsnefnd vill benda á að ef Gamli vatnstankurinn verði tekin undir atvinnustarfsemi kalli það á breytingar á aðalskipulagi sem og gerð deiliskipulags. Í þeim tilfellum þarf að gæta að viðhorfi þeirra sem búa í grennd við umrætt svæði, aðgengi að því og margt annað sem huga þarf að við skipulagsgerðina. Nefndin beinir því til bæjarráðs að áður en nokkuð annað verði ákveðið í málinu að kanna ástand hússins með það fyrir augu að kanna raunhæfni þess að útbúa húsið fyrir atvinnurekstur og meta heildarkostnað sem gæti fallið á sveitarfélagið við skipulagsgerðina og framkvæmdir sem falla mundi á sveitarfélagið vegna þess, áður en nokkuð annað er ákveðið. Einnig að óskað verði eftir viðskiptaáætlun vegna framkvæmdarinnar.
|
| |
|
|
| 14. |
201112004 - Umhverfisstefna sveitarfélagsins |
|
|
Nefndin leggur til að unnin verði umhverfisstefna fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð. Vinnan verði unnin á sambærilegan hátt og aðrar stefnur sveitarfélagsins, svo sem fjölskyldustefna og skólastefna. Starfsmönnum falið að móta tíma- og verkáætlun fyrir næsta fund umhverfis- og skipulagsnefndar. |
| |
|
|
| 15. |
201203014 - Umhverfisviðurkenning |
|
|
Starfsmönnum falið að auglýsa eftir umhverfisviðurkenningum. Nefndin samþykkir að afhending viðurkenningarinnar fari fram á Humarhátíð ár hvert. |
| |
|
|
| 16. |
201203013 - Umhverfi Félagsheimila |
|
|
Starfsmönnum falið að huga að umhverfi félagsheimila, fara yfir girðingar og kanna hvort hægt sé að fegra umhverfi þeirra með auknum gróðri. |
| |
|
|
| 17. |
201109078 - Girðingamál og ágangur hreindýra á Mýrum |
|
|
Lagt fram bréf Búnaðarsambands Suðurlands um úttekt á girðingum. Nefndin fagnar framkominni úttekt á girðingum í Flatey á Mýrum þar sem fram kemur að ástandi girðinga er þokkalegt. Nefndin hvetur til þess að sambærileg úttekt fari fram annarsstaðar í sveitarfélaginu. |
| |
|
|