Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð Heilbrigðis- og öldrunarráðs 56
56. fundur
Fundur haldin í Heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar miðvikudaginn 15. desember 2004, kl. 16:10 í fundarsal Ráðhúss.
Mætt voru: Maren Ósk Sveinbjörnsdóttir sem stýrði fundi, Kristín Gestsdóttir og Margrét Ingólfsdóttir. Einnig Hjalti Þór Vignisson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Guðrún Júlía Jónsdóttir og Ragnhildur Magnúsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Rekstrarstaða HSSA og fjárhagsáætlun 2005.
Samkvæmt nýjustum tölum verður tap ársins 2004 um 3 miljónir króna. Starfsmaður greindi frá að niðurstaða væri komin í viðræður sveitarfélagsins og ráðuneytisins. Áætlun fyrir árið 2005 hefur lítið breyst frá síðasta fundi Heilbrigðis- og öldrunarráðs og því er enn gert ráð fyrir 2ja miljóna króna hagnaði af rekstri hjúkrunarsviðs en 2ja miljóna króna halla af rekstri heilsugæslusviðs.
Stjórnendum HSSA falið að kanna hvernig hægt er að mæta tapi á árinu 2004 í rekstri ársins 2005.
Heilbrigðis- og öldrunarráð vísar fjárhagsáætlun til bæjarstjórnar.
(Ásta vék af fundi kl. 16:50).
2. Starfsmannamál.
Starfsmannamál á stofnuninni rædd.
3. Framkvæmdir.
Farið yfir framkvæmdir á 4ja manna stofu, bráðaherbergi og skiptistofu, flutningi á eldhúsi úr skjólgarði yfir í hjúkrunardeild og hugmyndir um breytingar á dagvist.
Talsverðar umræður sköpuðust um dagvist. Starfsmönnum falið að vinna að nánari útfærslu að hugmyndunum.
4. Áfangaskýrsla nefndar um flutning verkefna á sviði heilbrigðismála frá ríki til sveitarfélaga.
Ákveðið að taka skýrsluna til umræðu á næstu fundum nefndarinnar.
5. Tillögur að reglum HSSA um námsleyfi/námsferðir lækna.
Heilbrigðis- og öldrunarráð leggur til að 8. mgr. falli niður og í stað komi: Ef þátttökugjald er dýrara en viðmið segir til um en fargjöld lág og öfugt, er tilfærsla á milli þessara liða heimil. Þá leggur Heilbrigðis- og öldrunarráð til að í lokin komi eftirfarandi mgr.: Endurskoða skal reglurnar einu sinni á ári.
Að öðru leyti samþykkir Heilbrigðis- og öldrunarráð reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til bæjarráðs.
6. Reglur um félagslega heimilisþjónustu.
Heilbrigðis- og öldrunarráð leggur til að eftirfarandi ákvæði til bráðabirgða verði sett inn í reglurnar: Innan árs skal vera búið að gera þjónustusamning við þá einstaklinga sem nú þegar njóta félagslegrar heimilisþjónustu.
Heilbrigðis- og öldrunarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til bæjarráðs.
7. Heimasíða.
Rætt um hugmyndir að gerð heimasíðu fyrir HSSA. Yfirlæknir og hjúkrunarforstjóri fóru yfir notagildi heimasíðunnar. Rætt um að kostnaður við síðuna yrði að rúmast innan fjárhagsáætlunar.
8. Bréf úrskurðarnefndar í vátryggingarmálum, dags. 29. nóv. 2004.
Heilbrigðis- og öldrunarráð beinir því til bæjarráðs að það leiti réttar bæjarfélagsins í málinu.
9. Önnur mál.
Rætt um rafmangsleysi á HSSA í haust. Rætt um nauðsyn á að vararafstöð sé til staðar til að hindra að neyðarástand geti skapast á stofnuninni.
Sagt frá þróunarverkefni sem sjúkraþjálfarar eru að vinna í samráði við framkvæmdaráð um bætta vinnuaðstöðu og vinnuferla á HSSA.
Fundi slitið kl. 18:30


