Fundargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs 73
73. fundur
Fundur haldin í Heilbrigðis- og öldrunarráði Hornafjarðar miðvikudaginn 20. september 2006 kl. 16:15 í Ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Árni R. Þorvaldsson, Guðrún Ingimundardóttir, Ásgeir Gunnarsson, Björk Pálsdóttir og Aðalsteinn Ingólfsson. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ásta H. Guðmundsdóttir, Jóhanna Kristjánsdóttir og Sigríður Lárusdóttir.
1. Fundargerð síðasta fundar lögð fram til samþykktar
Fundargerð samþykkt.
2. Staðan 31 ágúst 2006
Guðrún Júlía fór yfir stöðu reikninga 31. ágúst 2006 þar kemur fram að halli er um 5,2 m.kr. sem er vegna launahækkana. HÖR ítrekar fyrri bókun sína um að sá halli sem er tilkominn vegna ófyrirséðra launahækkana verði leiðréttur.
3. Staðan í læknamálum
Hjalti Þór Vignisson kom á fundinn og upplýsti um stöðu varðandi læknamál, staðan er erfið og nauðsynlegt að ná festu í læknamálin.
4. Þjónustusamningurinn
Árni upplýsti að fundur verður 4. október n.k. í Reykjavík varðandi endurnýjun á þjónustusamningi við heilbrigðisráðuneytið. Fyrirhugað er að bæjarstjóri, formaður HÖR og framkvæmdastjóri HSSA mæti á fundinn f.h. sveitarfélagsins
5. Önnur mál
Árni kynnti bréf frá Sigurgeiri Jónssyni.
Guðrún Júlía upplýsti að farið sé að nota nýju röntgentækin.
Árni R. Þorvaldsson, Ásgeir Gunnarsson og Björk Pálsdóttir voru kosin í stjórn Gjafa og minningarsjóð Skjólgarðs og til vara Guðrún Ingimundardóttir og Aðalsteinn Ingólfsson.


