Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð gjafa og minningarsjóðs Skjólgarðs 36
36. fundur
Fundur haldinn: í stjórn Gjafa- og minningarsjóðs Skjólgarðs í fundarsal ráðhúss Hornafjarðar 22. ágúst 2007 kl. 18:00.
Mætt voru: Árni Þorvaldsson, Ásgeir Gunnarsson og Björk Pálsdóttir.
- Sala minningarkorta
Rætt var um framtíðarfyrirkomulag á sölu á minningarkortum Skjólgarðs. Rætt um hvort kortin eigi að vera handskrifuð eða fara í tölvuprentara. Formanni falið að kanna málið og koma því í farveg.
Fundi slitið kl. 18:15
Árni Rúnar Þorvaldsson
Björk Pálsdóttir
Ásgeir Gunnarsson


