Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Fundargerð stjórnar HSSA 3
3. fundur
Fundur haldinn í Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands 6.október 2010 kl. 12:00 í fundarsal ráðhúss
Mætt voru: Ásgeir Gunnarsson, Guðrún Ása Jóhannsdóttir, Guðrún Ingimundardóttir, Eyrún Unnur Guðmundsdóttir, Örn Eriksen. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir og Hjalti Þór Vignisson.
1. Fjárlög 2011
Hjalti og Guðrún Júlía gerðu grein fyrir fjárlögum ársins 2011, fundi með starfsmönnum á HSSA og þeirri vinnu sem fram hefur farið í vikunni til að meta áhrif niðurskurðarins og áherslur í viðræðum við ríkið.
Stjórn HSSA felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu. Næsti fundur verður boðaður 27. október nk.
Fundi slitið kl: 12.45


