Fundargerð stjórnar HSSA 23
23. fundur
FUNDARGERÐ
Fundur haldinn í Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands þriðjudaginn 28. ágúst 2012
kl. 16:20.
Mætt voru: Ásgeir Gunnarsson, Guðmundur Gunnarsson, Guðbjörg Garðarsdóttir, Guðrún Ingimundardóttir og Lovísa Rósa Bjarnadóttir. Einnig: Guðrún Júlía Jónsdóttir, Ásgerður Gylfadóttir, Ester Þorvaldsdóttir og Hjalti Þór Vignisson.
Fundargerðritaði: Guðrún Júlía Jónsdóttir, framkvæmdastjóri
1. Þjónustusamningur um rekstur heilbrigðis- og öldrunarþjónustu á vegum Sveitarfélagsins. Hjalti og Árni Helgason fara yfir stöðu mála
Árni Helgason frá Cato lögmenn sat fundinn undir þessum lið.
Árni gerði grein fyrir möguleikum HSSA og sveitarfélagsins að sækja ógreitt fé á hendur íslenska ríkinu skv. þjónustusamningi með málsókn. Stjórn HSSA vísar málinu til umræðu í bæjarráði en leggur ríka áherslu á að áður en ákvörðun er tekin verði samráð haft við stjórn HSSA.
2. Fundargerð 22 fundar lögð fram til kynningar
Engar athugasemdir.
3. Starfsmannamál
Formaður greindi frá að framkvæmdastjóri hefur sagt upp stöðu sinni. Bæjarráð hefur ákveðið að nýr framkvæmdastjóri HSSA verður ráðinn í gegnum ráðgjafafyrirtækið Hagvang.
Hjalti vék af fundi kl: 17.20.
4. Rekstrarstaðan 31. júlí 2012
Rekstrarstaðan er í jafnvægi en það er óvissa um lokaniðurstöðu þ.e. hvort HSSA fær að fullu greitt fyrir 26 hjúkrunarrými skv. Þjónustusamningi eins og gert er ráð fyrir í fjárhagsáætlun.
5. Stefnumótun HSSA
Formaður leggur til að skipaður verði hópur þriggja nefndarmanna úr stjórn HSSA, sem fer yfir drögin að stefnumótuninni og kemur með tillögu um endanlega framsetningu og kynningu. Er það samþykkt og hópinn skipa Ásgeir, Guðmundur og Guðrún Ingimundard.
6. Búmenn og íbúðir aldraðra
Framkvæmdastjóri HSSA fundaði í vor með framkvæmdastjóra og verkefnastjóra Búmanna. Fram hefur komið áhugi og eftirspurn eftir íbúðum fyrir eldri borgara á Hornafirði. Búmenn eru tilbúnir að skoða möguleika að frekari uppbyggingu á Ekrusvæðinu. Formanni og framkvæmdastjóra er falið að fá fund með Búmönnum sem haldinn verði á Hornafirði.
7. Bygging á nýju hjúkrunarheimili
Starfshópur um byggingu nýs hjúkrunarheimilis var stofnaður í júní sl. Formaður kallar saman hópinn í næstu viku.
8. Önnur mál
Fundi slitið kl: 18.25


