Fundargerð nefndar um íþróttamannvirki 37
37. fundur
Fundur haldinn í ráðhúsi miðvikudaginn 9. maí 2007, kl. 13:00
Mætt voru: Friðrik Þór Ingvaldsson formaður, Halldóra B. Jónsdóttir, Ragnhildur Einarsdóttir, Þórgunnur Torfadóttir, Stefán Ólafsson, Haukur Ingi Einarsson, Pétur W. Jessen og Svavar Sigurjónsson
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
- Staða framkvæmda við íþróttavöll
Pétur greindi frá því að framkvæmdir við íþróttavöll væru komnar vel af stað en mikið væri eftir. Reiknar Pétur með að vinna við hlaupabrautarefni, sem ekki er komið til landsins, hefjist í lok mánaðarins. Þegar þær framkvæmdir hefjist þurfi allur annar frágangur að vera búinn, einnig svæði utan hlaupabrautar. Lagði hann áherslu á að girða þurfi völlinn (með lággirðingu).
Nefndin samþykkir að leita til Bjarna Hákonarsonar um að leggja gras á ófrágengin svæði utan vallarins og að gengið verði til samninga við Rósaberg um frágang á svæðum utan vallar undir þökulagningu.
Rætt um hvort blanda skuli steinsalla í gúmmílag á hlaupa- og atrennubrautum. Fram komu efasemdir um að það sé nauðsynlegt. Ákv. að bíða í um eina viku að taka ákvörðun um það mál.
Samþykkt að leita til Náttúrulega að koma með tillögu um frágang á svæðinu svo og girðingu umhverfis völlinn. Vísað til starfsmanna að ræða málin starfsmenn fyrirtækisins.
2. Knattspyrnuhús
Pétur kynnti hugmyndir að uppblásnu knattspyrnuhúsi.
3. Símafundur með tilbjóðanda í sundlaug og verkfræðingum
Haukur greindi frá símafundi sínum með Jóni Guðmundssyni, Geir Þorsteinssyni og Sturlaugi Þorsteinssyni. Fram kom á þeim fundi að Geir og Sturlaugur muni koma með skriflega skýringu á innihaldi tilboðs Geirs Þorsteinssonar í sundlaug.
Næsti fundur boðaður föstudaginn 11. maí.
Fundi slitið kl. 14:25


