Fundargerð Bæjarráðs 256
256. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, miðvikudaginn 23. júní 2004, kl. 8:00
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, Halldóra B. Jónsdóttir, Einar Karlsson. Áheyrnarfulltrúi var Kristín Gestsdóttir.
Einnig: Albert Eymundsson, Ásta H.Guðmundsdóttir og Helgi Már Pálsson
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
Mættir frá menntamálaráðuneytinu voru Guðmundur Árnason, Hermann Jóhannesson og Örlygur Geirsson.
1. Bygging Framhaldsskóla A-Skaft. í Nýheimum
• Rekstrarform Nýheima
Samkomulag var um að sveitarfélagið gerði uppkast að samningi milli ríkis og sveitarfélags varðandi sameiginlegan rekstur. Rætt var um sambærilegan samning og var í gildi milli ríkisins og sveitarfélagsins varðandi húsnæðisrekstur.
• Eignarskiptasamningur
Samþykkt var að leggja endanlegan eignaskiptasamning fyrir m.v. að sameiginlegt rýmir nái inn í bókasafnið en bókasafnið að öðru leyti séreign.
• Uppgjör Nýheima
Rætt var um normkostnað og uppgjör milli aðila . Einnig var rætt um endurskoðun á kaupverði FAS í Nesjaskóla.
Fundi slitið kl. 11:45


