Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs
209. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, þriðjudaginn 29. april 2003, kl 14:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Friðrik Þór Ingvaldsson, Ólafur Sigurðsson og Kristín Gestsdóttir sem áheyrnarfulltrúi.
Einnig: Albert Eymundsson, Stefán Ólafsson, Helgi Már Pálsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
Skólanefnd Hornafjarðar 49. fundur 23. april 2003.
Bæjarráð samþykkti að gerð verði tilraun með danskennslu í Nesjaskóla á næsta skólaári 2003 - 2004 í samræmi við fyrirliggjandi samþykkt skólanefndar.
Fundargerð samþykkt.
Starfshópur um stofnun Jöklaseturs 4. fundur 11. april og 5. fundur 22. april 2003.
Fram kom að nefndi stefnir að því að skila skýrslu um málið fljótlega.
Fundargerðir samþykktar.
Fundargerð 58. fundar samstarfsnefndar LN og Félags leikskólakennara – til kynningar
63. fulltrúaráðsfundur Sambands íslenskra sveitarfélaga – til kynningar
2. Drög að gjaldskrá lengdrar viðveru 2003 – 2004
Bæjarráð samþykkti fram lögð drög að gjaldskrá lengdrar viðveru.
3. Drög að samningi við Regula lögmannsstofu
Sigríður Kristinsdóttir lögmaður mætti á fundinn og fór yfir drög að samningi um lögfræðiþjónustu á milli Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Regula lögmannsstofu.
Samþykkt var að taka ákvörðun um málið á næsta fundi bæjarráðs.
4. Styrkbeiðnir
Hestamannafélagið Hornfirðingur, beiðni um 2,2 milljón kr. styrk v. Fjórðungsmóts hestamanna á Austurlandi 3. – 6. júlí nk.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gera tillögu að samkomulagi við Hestamannafélagið.
Óperustúdíó Austurlands, beiðni um styrk að upphæð kr. 150.000 v. „Bjartar nætur í júní 2003“.
Bæjarráð telur sér ekki fært að verða við beiðninni.
Alnæmissamtökin á Íslandi, beiðni um styrk v. forvarnar- og fræðsluátaks.
Bæjarstjóra falið að svara beiðninni.
5. Lóðaumsókn
· Bréf frá Einari Torfasyni þar sem farið er fram á úthlutun lóðar.
Bæjarráð felur tækni- og umhverfissviði að ræða við umsækjanda og skoða málið.
6. Beiðni landbúnaðarráðuneytis um samþykki bæjarstjórnar á leigu á jörðinni Sandfelli í Hofshreppi
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að leigusamningi á jörðinni Sandfelli með fyrirvara um að þess verði gætt að aðgengi ferðaþjónustuaðila að ákveðnum svæðum s.s. Ingólfshöfða skerðist ekki. Bæjarráð vill einnig ítreka fyrri bókun sína þess efnis að á meðan unnið er að undirbúningi stofnunar Vatnajökulsþjóðgarðs verði ekki gerðir nýir ábúðarsamningar eða óuppsegjanlegir langtímaleigusamningar um ríkisjarðir í grennd við Vatnajökul.
7. Innsend erindi og til kynningar
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið – breyting á lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 97/1990.
Til kynningar.
Varasjóður húsnæðismála – úthlutun rekstrarframlaga vegna félagslegra íbúða v. ársins 2002.
Til kynningar.
Félagsmálaráðuneytið – áætlun um úthlutun framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga á árinu 2003.
Til kynningar.
Ráðstefna um menningarstefnu í Norræna húsinu í Reykjavík 9. – 10. maí nk.
Til kynningar.
Pokasjóður – synjun á styrkbeiðni v. kaupa á líkani af Vatnajökli.
Til kynningar.
8. Önnur mál
Aðalfundur Þróunarfélags Austurlands árið verður haldinn föstudaginn 2. maí n.k. á Hótel Héraði
Erindinu vísað til bæjarstjóra.
Stefán sagði frá viðræðum við Austurleið um framlengingu samnings um skólaakstur til tveggja ára.
Fundi slitið kl. 15:40


