Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs
197. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 23. janúar 2003, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Friðrik Þór Ingvaldsson og Kristín Gestsdóttir sem áheyrnarfulltrúi.
Einnig: Albert Eymundsson, Inga Jóna Halldórsdóttir, Stefán Ólafsson, Helgi Már Pálsson og Ásta H. Guðmundsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Skólanefnd Hornafjarðar 46. fundur 15. janúar 2003.
Rætt var um smíðastofur. Fram kom að verið er að vinna að forkönnun á nýtingarmöguleikum Vöruhúss og mun niðurstaða þeirrar vinnu væntanlega liggja fyrir fljótlega. Rætt var um að bæta þurfi aðstöðu þeirra sem sem stunda hér fjarnám. Hugmyndir eru uppi um að skapa aðstöðu í Nýheimum fyrir þessa nemendur.
Fundargerð samþykkt.
Uppgjör 2002
Lagt var fram minnisblað dags. 20. janúar 2002 um Nýheima.
· Uppgjör vegna byggingar Nýheima
Samkvæmt uppgjörsblaði dags. 20. janúar er heildarkostnaður við byggingu Nýheima 468,5 milljónir, án gatnagerðargjalda en kominn er inn viðbótarkostnaður frá fyrra yfirliti upp á rúmar 2 milljónir. Bæjarráð felur bæjarstjóra að leita eftir samningaviðræðum við ríkið um endurskoðun á samningum ríkisins og sveitarfélagsins um byggingu Framhaldsskólans í Austur -Skaftafellssýslu í Nýheimum og yfirtöku sveitarfélagsins á húsnæði FAS í Nesjaskóla.
· Eignaskipting Nýheima
Í ljósi þess að sveitarfélagið hefur fjármagnað hluta Nýheimabúða í Nýheimum og gengist í ábyrgð fyrir þann hluta byggingarinnar samþykkir bæjarráð að sveitarfélagið gangi til samninga við stjórn Nýheimabúða ehf. um að fullt eignarhald færist til bæjarins í samræmi við tillögur Sigurðar Tómassonar endurskoðanda sveitarfélagsins og Sigfúar Jónssonar hjá Nýsi. Samkvæmt yfirliti dags.20. jan. er um að ræða fjárfestingu að upphæð 76,3 milljónir.
· Gatnagerðargjöld v. Nýheima
Bæjarráð samþykkir að gatnagerðargjöld verði ekki lögð á byggingu Nýheima en kostnaðurinn komi fram í endanlegu uppgjöri milli byggingaraðila.
· Viðbótarkostnaður skv. minnisblaði
Bæjarráð samþykkir framlag að upphæð 2,5 milljónir til lokafrágangs í Nýheimum og felur framkvæmdastjóra tækn- og umhverfissviðs að gera tillögu í samráði við forstöðumenn um til hvaða verka fjármununum verður varið.
· Afskriftir viðskiptakrafna
Ásta lagði fram samantekt á kröfum sem ekki hefur tekist að innheimta. Bæjarráð samþykkir að eftirfarandi kröfur verði afskrifaðar:
Afskrift bæjarsjóðs 4.807.260,-
Afskrift Hafnarsjóðs 1.241.529,-
Hluti þessara krafna hefur þegar verið afskrifaður óbeinni afskrift.
2. Frumkvöðlasetur Austurlands í Nýheimum
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu í samræmi við tillögur og skipulag starfsmanna Nýsköpunarsjóðs og stöðu málsins.
3. Búmenn hsf. – umsókn um lóðir
Bæjarráð tók jákvætt í erindið. Bæjarráð felur bæjarstjóra og starfsmönnum að vinna í samvinnu við Búmenn að skipulagningu svæðisins.
.
4. Beiðni umhverfisráðuneytis um tilnefningu í Vatnajökulsnefnd
Erindinu frestað til næsta fundar.
5. Innsend erindi og til kynningar
· Félag leikskólakennara v. einsetningar leikskóla og endurgjaldslausan leikskóla.
Til kynningar.
· Félagsmálaráðuneytið – lög um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga nr 45/1995, með síðari breytingum.
Til kynningar.
6. Önnur mál
Bæjarstjóri kynnti bréf frá forstjóra Alcoa. (þar sem lýst er von um farsælt samstarf hvort sem um beina eða óbeina þáttöku sveitarfélagsins verður að ræða við byggingu álversins á Reyðarfirði ???)
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara bréfinu.
Kynnt var bréf frá fulltrúum nemenda í FAS þar ræddar eru hugmyndir um stofnun unglingahúss á Höfn.
Bæjarráð óskar þess að fulltrúar nemenda FAS fundi með bæjarráði um málið.
Fulltrúar Ferðamálafélags Austur-Skaftafellssýslu, Ásmundur Gíslason, Sigurlaug Gissurardóttir og Óðinn Eymundsson mættu á fundinn og ræddu hugsanlega samvinnu milli félagsins og sveitarfélagsins í auglýsingar og kynningarmálum.
Fundi slitið kl. 12:20


