Fundargerð Bæjarráðs
195. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 9. janúar 2003, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Ólafur Sigurðsson og Eyjólfur Guðmundsson sem áheyrnarfulltrúi.
Einnig: Albert Eymundsson, Inga Jóna Halldórsdóttir, Stefán Ólafsson, Helgi Már Pálsson og Ásta H. Guðmundsdóttir.
Formaður bæjarráðs óskaði nefndarmönnum og starfsmönnum gleðilegs árs.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Byggingarnefnd Nýheima 50. fundur 6. janúar 2002.
Fundargerð samþykkt.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 85. fundur 20. desember 2002.
Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd Hornafjarðar 45. fundur 18. desember 2002.
Fundargerð samþykkt.
· Landskerfi bókasafna – hluthafafundur 15. nóvember 2002 til kynningar.
· Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum 20. fundur 6. desember 2002 og fundur stjórnar með starfsmönnum Orkustofnunar sama dag, báðar til kynningar.
· Samstarfsnefnd LN og SSB 14. fundur 11. desember 2002 til kynningar.
2. Fjárhagsáætlun 2003
Ásta lagði fram áætlaða stöðu um áramót. Samkvæmt því eru skatttekjur ársins 2002 3% yfir fjárhagsáætlun og rekstur málaflokka 1% yfir áætlun.
Bæjarráð úthlutar eftirtöldum félögum styrk 2003:
Samband Austur - Skaftfellskra kvenna 50.000,-
Björgunarfélag Hornafjarðar 200.000,-
Nemendafélag FAS 100.000,-
Hestamannafél. Hornfirðingur v. viðh 200.000,-
Merking gönguleiða 100.000,-
Styrkur v. forvarnarstarfs læknanema 10.000,-
Skógræktarfélag A-Skaftafellssýslu 200.000,-
Landgræðslufélag Öræfinga 50.000,-
Óráðstafað 90.000,-
Ólafur benti á að styrkur til Landgræðslufélagsins hefur verið notaður til unglingavinnu á svæðinu.
Ásta lagði fram fjárhagsáætlun fyrir Heilbrigðisstofnun Suðausturlands byggða á nýjum drögum að þjónustusamningi við ríkið. Bæjarráð vísar áætluninni til afgreiðslu í Heilbrigðis- og öldrunarráði.
3. Þjónustusamningur við Heilbrigðisráðuneytið
Albert fór yfir samningsdrögin og þær breytingar sem gerðar hafa verið frá fyrri drögum. Bæjarráð samþykkir drögin og heimilar að bæjarstjóri gangi frá undirritun hans með þeim fyrirvara að sérstakt samkomulag um frekari uppbyggingu heilbrigðisþjónustu í Austur-Skaftafellssýslu liggi fyrir.
Eyjólfur lýsti ánægju með lið 8.3 í drögunum þar sem kveðið er á um kerfisbundna skráningu kvartana frá sjúklingum og aðstandendum vegna þjónustu stofnunarinnar. Hann lagði áherslu á að íbúum verði kynnt vel þetta ákvæði samningsins.
4. Skil Byggingarnefndar Nýheima
Gísli Sverrir Árnason formaður nefndarinnar mætti á fundinn. Gísli og Helgi Már fóru yfir meginniðurstöður nefndarinnar. Samkvæmt uppgjöri er heildarkostnaður við verkið nú með stofnbúnaði 466,5 milljónir. Lagður var fram listi yfir hluti sem útaf standa til þess að fullklára húsið að mati nefndarinnar. Sá listi hljóðar upp á 6,9 milljónir. Bæjarráð þakkaði byggingarnefnd mjög vel unnin störf og lýsti yfir mikilli ánægju með bygginguna.
5. Ósk um umsögn um aðilaskipti á Lækjarbrekku
Elín vék af fundi.
Bæjarráð samþykkir aðilaskiptin og afsalar sér forkaupsrétti á landinu með fyrirvara um samþykki jarðanefndar.
6. Innsend erindi og til kynningar
· Nefnd um stofnun verndarsvæðis norðan Vatnajökuls, bréf Umhverfisráðuneytis dags. 16. desember 2002.
Til kynningar.
· Afgreiðsla viðbótarlánaheimilda, bréf Íbúðalánasjóðs dags. 20. desember 2002.
Til kynningar.
· Aðalfundur Íslenskra ævintýraferða 20. janúar 2003, bréf ódagsett.
Til kynningar.
· Námskeið fyrir sveitarstjórnarmenn, bréf Samb. ísl. sveitarf. dags. 16. desember 2002.
Til kynningar.
· Undirgöng við Nesjaskóla, bréf Vegagerðarinnar dags. 17. desember 2002.
Til kynningar.
· Umhverfisstofnun – kynning.
Til kynningar.
· Uppreiknuð tekju- og eignarmörk vegna viðbótarlána og félagslegra leiguíbúða, bréf dags. 6. janúar 2003.
Til kynningar.
· Mannfjöldi á Íslandi 1. desember 2002 – bráðabirgðatölur. Vísaða á töflur á vef Hagstofunnar.
Til kynningar.
7. Önnur mál
Helgi sagði frá því að frá og með 13 janúar verður úrgangur sem fer í urðunarsvæðið í Lóni allur viktaður og flokkaður. Tilgangurinn er að fullnæja skilyrðum nýs starfsleyfis og getur orðið grunnur nýrrar gjaldskrár.
Elín lýsti áhyggjum af vaxandi fjölda atvinnulausra í sveitarfélaginu. Bæjarráðsmenn tóku undir orð Elínar og talsverðar umræður urðu um möguleika bæjarstjórnar til að bregðast við því.
Fundi slitið kl. 12:10


