Fundargerð bæjarráðs 312
312. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 17. nóvember 2005, kl. 10:00.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, formaður Einar Karlsson og Björn Emil Traustason. Áheyrnarfulltrúi: Kristín G. Gestsdóttir. Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Stefán Ólafsson og Helgi Már Pálsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
- Fundargerðir
· Atvinnumálanefnd Hornfjarðar 21. fundur 7. nóvember 2005. Fram kom að boranir eftir heitu vatni við Hoffell hefjist eigi fyrr en um miðjan desember næstkomandi. Bæjarráð tekur undir bókun atvinnumálanefndar um lausagöngu búfjár.
Fundargerð samþykkt.
· Byggingar- og skipulagsnefnd 63. fundur 9. nóvember 2005. Bæjarráð felur starfsmönnum að fylgja eftir samþykkt byggingar- og skipulagsnefndar um að umrætt fjárhús við Fjárhúsavík, sbr. 2. lið í fundargerð nefndarinnar, verði rifið fyrir 1. júlí 2006. Skal það gert í samræmi við gildandi lög og reglugerðir.
Fundargerð samþykkt.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 135. fundur 8. nóvember 2005.
Fundargerð samþykkt.
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 70. fundur 9. nóvember 2005. Fram kom að lestunaraðstaða á Austurfjörum (8. liður) er í vinnslu. Fundargerð samþykkt.
· Menningarmálanefnd Hornafjarðar 72. fundur 9. nóvember 2005. Kristín gerði að umtalsefni rokktónleika sem haldnir voru hér um síðustu helgi. Þeir hefðu tekist ákaflega vel og verið frábært framtak hjá þeim sem að tónleikunum stóðu. Fannst Kristínu þátttaka heimamann ekki hafa verið nógu góða. Var undir þessi orð Kristínar, um ágæti þessa framtaks, tekið.
Fundargerð samþykkt.
· Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar 73. fundur 11. nóvember 2005. Fundargerð samþykkt.
2. Ósk um endurnýjun leyfis til reksturs gistiheimilis og veitingahúss
Bréf Sýslumannsins á Höfn dags. 3. nóvember 2005 vegna Árnaness. Samþykkt.
3. Málefni eldri borgara í Öræfum
Stefán greindi frá samskiptum sínum við Pálínu Þorsteinsdóttur sem haft hefur frumkvæði að því að eldri borgarar í Öræfum geti hist á samverustundum í Hofgarði.
Bæjarráð lýsir yfir ánægju með þessa hugmynd og felur starfsmönnum að vinna að framgangi málsins.
4. Aðstaða vegna ungmennalandsmóts UMFÍ 2007
Lagt fram minnisblað frá starfshópi. Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum sérstaklega með sundlaugarbyggingu í huga. Undir þessum lið var kynnt bréf frá Knattspyrnudeild Sindra, dags. 17.11. 2005.
Bæjarráð sammála því að knattspyrnudeildin, sem og aðrir sem hlut eiga að máli, komi að undirbúningi fyrir fyrirhugað landsmót.
5. Leiga Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands á íbúðum í Ekru
Elín kynnti stöðu málsins og upplýsti að Búmenn hafi gert tilboð í tvær íbúðir í Ekru og að heilbrigðis- og öldrunarráð hafi samþykkt að leigja þær vegna breytinga á öldrunarþjónustu HSSA.
Bæjarráð er sammála þessari tillögu heilbrigðis- og öldrunarráðs.
6. Innsend erindi og til kynningar
· Rangárþings eystra, bréf dags. 31. október 2005. vegna stofnunar byggðasamlags um Green Globe verkefnið.
Bæjarráð sammála því að fresta endanlegri ákvörðun í málinu uns fjárhagsáætlun 2006 hefur verið afgreidd.
· Náttból ehf., bréf dags. 2. nóvember 2005, vegna leigugjalds.
Vísað til starfsmanna til úrvinnslu í samræmi við umræður á fundinum.
· UST, bréf dags. 2. nóvember 2005, vegna umsagna um framkvæmdir skv. lögum um náttúruvernd. Til kynningar.
· Samgönguráðuneytið, bréf dags. 3. nóvember 2005, svar við bréfi með bókun bæjarráðs um jarðgögn milli Lóns og Álftafjarðar.
Til kynningar.
· Félagsmálaráðuneytið, bréf dags. 3. nóvember 2005, vegna, nýrrar reglugerðar um daggæslu barna í heimahúsum.
Til kynningar.
· Samband íslenskra sveitarfélaga,tölvubréf dags. 7. nóvember 2005 um „Skilgreiningu á þjónustu sambandsinsvið einstök sveitarfélög og einstaka sveitarstjórnarmenn“. Til kynningar.
· Samband ísl. Sveitarfélaga, bréf dags. 7. nóvember 2005, boð á afmælisráðstefnu sambandsins 2. desember 2005.
Til kynningar.
· SSA, bréf dags. 7. nóvember 2005, vegna matsskýrslu R.H.A til umfjöllunar og afgreiðslu.
Til kynningar.
· Samgönguráðuneytið, bréf dags. 9. nóvember 2005, vegna flugmála á Hornafirði.
Til kynningar.
Umræður sköpuðust um túlkun á því hvenær flug félli niður vegna veðurs og hvenær skortur á flugvélum væri ástæða þess að flug félli niður. Meðal annars bent á að leigja megi flugvélar af öðrum flugrekstraraðilum. Albert greindi frá fundi með núverandi flugrekstraraðilum og sagðist vera ánægður með þann fund.
· Félagsmálaráðuneytið, bréf dags. 7. nóvember 2005, vegna Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Til kynningar.
7. Önnur mál
· Lögð fram styrkumsókn vegna Gospelnámskeiðs.
Umsókn vísað til afgreiðslu fjárhagsáætlunar þar sem hún verður afgreidd með öðrum umsóknum.
· Lögð fram drög að landbóta- og landnýtingaráætlun fyrir upprekstrarlönd í Nesjum sem varðar sérstaklega bændur sem eiga upprekstur í Laxárdal.
Kom fram að verið sé að formfesta ríkjandi fyrirkomulag að mestu leyti. Þó er gert ráð fyrir auknu samráði við Landgræðslu ríkisins um upprekstrartíma og vöktun lands. Ekki er gert ráð fyrir auknum kostnaði fyrir sveitarfélagið samhliða þessum samningi. Áætlun þessa munu undirrita Sveitarfélagið Hornafjörður, bændur sem hlut eiga að máli og Landgræðsla ríkisins.
Bæjarráð gerir ekki efnislegar athugasemdir við fyrirliggjandi drög.
· Greint frá styrk úr styrktarsjóði Eignarhaldsfélags Brunabótafélagsins, að upphæð kr. 400.000, til að vinna markaðsáætlun fyrir Jöklasýningu.
· Greint frá afgreiðslu Framkvæmdasjóðs fatlaðra sem samþykkt hefur að veita krónur 18 milljónir til breytinga og endurbóta á íbúðum sem ætlaðar eru fólki með fötlun. Bæjarráð fagnar þessari afgreiðslu.
· Lagt fram bréf, dagsett 15. nóvember 2005, frá Hjalta Egilssyni og Birnu Jensdóttur á Seljavöllum þar sem er óskað eftir umsögn sveitarfélagsins vegna skiptingar jarðarinnar í tvo hluta milli núverandi ábúenda og stofnunar lögbýlis.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við málið og felur starfsmönnum að svara erindinu.
· Rætt um borgarafund þar sem til umfjöllunar verða fjárhagsáætlun 2006, framkvæmdir og skipulagsmál. Fundurinn er fyrirhugaður þann 28. nóvember kl. 20.00 í Nýheimum.
Einnig rætt um að hafa vinnufund í bæjarstjórn þann 24. nóvember um sömu mál.
· Kristín greindi frá fyrirhugaðri hátíð í Hafnarskóla þann 1. desember nk. Farið verður í skrúðgöngu þennan dag. Lagði hún til að bæjarráð taki á móti nemendum þennan dag við ráðhúsið.
Var þessi tillaga samþykkt.
Fundi slitið kl. 11:25


