Fundargerð bæjarráðs 343
343. fundur
Fundur haldinn í bæjarráð Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss þriðjudaginn 15. ágúst 2006 kl. 10:00
Mættir: Reynir Arnarson formaður, Guðrún Ingimundardóttir, og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson og Stefán Ólafsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1.Fundargerðir
· Hafnarstjórn Hornfjarðarhafnar 82. fundur 1. ágúst 2006.
Rætt um færslu á löndunarkrana frá bryggju framan við hafnarvog út á Óslandsbryggju. Upplýst að ósk um þann flutning komi frá Best fiski sem mest nýta þann krana.
Fundargerð samþykkt
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 14. fundur 2006.
· Fundargerð samþykkt
· Nefnd um íþróttamannvirki 20. fundur 10. ágúst 2006.
Björn Ingi gerði athugasemd við að nefnd um íþróttamannvirki kæmi með tillögu að frestun framkvæmda, þ.e. byggingu sundlaugar, það væri ekki hennar hlutverk að hans mati. Þá vildi hann að fyrir lægju einhver rök áður en teknar yrðu ákvarðanir um frestun eða framkvæmdir, t.d. nákvæmari kostnaðartölur eða jafnvel tilboð í verkið.
Hjalti benti Birni á að í fundargerðinni væri rætt um möguleika á frestun en ekki gerð tillaga þar um, á þessu tvennu væri munur.
Reynir tók undir að þetta væri ekki tillaga. Þessi hugmynd nefndarmanna væri hins vegar til umræðu og það væri bæjarstjórnar að taka ákvörðun um framkvæmdir. Lagði hann til að fljótlega yrði haldinn vinnufundur í bæjarstjórn til að fara yfir þessi mál.
Fram kom í umræðum að ekki væri samstaða um framkvæmdir og efnisval á íþróttavöllum í hópi íþróttamanna. Þetta væri ákveðið vandamál þegar kæmi að því að taka ákvörðun. Í þessari umræðu var einnig rætt um staðsetningu frjálsíþróttavallar með þá spurningu í huga hvort hann ætti að vera á Mánavelli eða Sindravöllum.
Samþykkt var að bæjarstjóri í samvinnu við bæjarstjórn fyndi hentugan tíma fyrir vinnufund í bæjarstjórn.
Fundargerð samþykkt
2. Samningur við RARIK vegna jarðhitaleitar
Bæjarstjóri fór yfir fyrirliggjandi drög að samningi við RARIK. Einnig greindi hann frá viðræðum við landeigendur.
Samþykkt var að halda áfram viðræðum við RARIK.
Einnig samþykkt að fá upplýsingar um kostnað sveitarfélagsins frá upphafi jarðhitaleitar í sveitarfélaginu, sundurgreindan eftir svæðum.
Óskað upplýsinga um hlutfall þeirra sem kynda með rafhitun annars vegar og fjarvarmaveitu hins vegar á áhrifasvæði jarðvarmaveitu.
3. Vegstæði yfir Hornafjarðarfljót
Rætt um fund með fulltrúum Vegagerðarinnar, bæjarstjórnarmönnum og bæjarstjóra þann 14. ágúst sl. og bréf nokkurra íbúa og fasteignaeigenda í Nesjum dags. 14. ágúst s.l.. Á fundinum var rætt um mismunandi leiðir vegna nýs vegar, meðal annars leiðir samkvæmt uppástungum frá nokkurra íbúa í Nesjum. Á þessum fundi kom fram hjá starfsmönnum Vegagerðarinnar mikil áhersla á umhverfisþátt framkvæmdanna.
Ákveðið var að bæjarstjóri og bæjarfulltrúar kynni sér aðstæður á umræddum vegarstæðum. Bæjarráð er sammála um að áfram verði unnið í samræmi við fyrirliggjandi áætlanir Vegagerðarinnar.
4. Gjaldskrá fyrir lengda viðveru
Samþykkt að hækka gjaldskrá lengdrar viðveru um 5% frá skólaárinu 2005 ? 2006. Einnig var samþykkt að vera með sama systkinaafslátt og er í leikskólum, þ.e. 25% afslátt með öðru barni og 50% afslátt með þriðja barni.
5. Ósk um umsögn á endurnýjun rekstrarleyfa
Sýslumaðurinn á Höfn, bréf dags. 8. ágúst 2006 vegna Kistugils ehf. umsækjandi Þóra Jónsdóttir, Skálafelli.
Sýslumaðurinn á Höfn, bréf dags. 8. ágúst 2006 vegna Árnanes Gistihúss, umsækjandi Helga Erlendsdóttir, Árnanesi.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að leyfin verði endurnýjuð.
6. Innsend erindi og til kynningar
· Vegagerðin, bréf dags. 3. ágúst vegna grjótnáms í varnargarða við Kotá.
Vísað til Tækni og umhverfissviðs Hornafjarðar.
· Forstöðumaður Fræðasetra Háskóla Íslands, ágúst 2006, niðurstöður málsþings um ?Sjálfbærni og þekkingarsamfélög á Íslandi?. Til kynningar.
7. Önnur mál
Hjalti greindi frá stofnanasamningi milli BHM og Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands. Sagði hann samninga við starfsmenn HSSA undanfarna mánuði hafa aukið launakostnað um 12,9%. Þessar hækkanir þurfi að fást bættar frá heilbrigðis- og tryggingaráðuneyti.
Bæjarráð samþykkir fyrrgreindan samning milli BHM og HSSA.
Samþykkt að skólaakstur við Grunnskólann í Hofgarði hækki til samræmis við hækkun á sambærilegum bifreiðum samkvæmt nýgerðum samningum um annan skólaakstur.
Reynir vakti athygli á nýlegum sýnum úr neysluvatni fyrir Höfn og hluta Nesjasveitar. Sýnin staðfesta að neysluvatn er hér í góðu lagi.
Björn Ingi spyr hver leysi bæjarstjóra af í fjarveru hans. Hjalti sagði að ekki hafi verið gengið frá því máli, sumarleyfi starfsmanna hafi m.a. valdið töfum þar á.
Björn Ingi óskaði eftir að fá starfslýsingar framkvæmdastjóranna og forstöðumanns Menningarmiðstöðvar. Einnig var rætt um störf og mannahald í stjórnsýslu sveitarfélagsins og möguleikum á úthýsingu verkefna.
Fundi slitið kl. 12:10


