Fundargerð bæjarráðs 375
375. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss þriðjudaginn 10. apríl 2007 kl. 10:00.
Mætt: Reynir Arnarson formaður, Árni Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri og Stefán Ólafsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Nefnd um endurskoðun fjallskila, 5. fundur 2. apríl 2007.
Reiknað er með að ný fjallskilasamþykkt taki gildi haustið 2008. Stefnt að samráðsfundum með landeigendum.
Fundargerð samþykkt
· Haust, 68. fundur 28. mars 2007.
Til kynningar.
2. Afnotasamningur milli sveitarfélagsins og Fjöruferða ehf.
Hjalti fór yfir útsend drög að afnotasamningi og greindi frá vinnu við hann með lögfræðingi sveitarfélagsins. Bæjarráð samþykkir fram lögð drög að afnotasamningi og felur bæjarstjóra að undirrita hann.
3. Þjónustusamningur um fyrirkomulag heilbrigðis- og öldrunarmála
Guðrún Júlía Jónsdóttir fór yfir stöðuna eins og hún er varðandi þjónustusamninginn. Sagði hún ársuppgjör 2006 þurfi að liggja fyrir og bera þurfi það saman við nýtt reiknilíkan heilbrigðisráðuneytisins. Þá lagði hún áherslu á að framlag í væntanlegum þjónustusamningi til fæðinga þurfi að fá leiðrétt.
Guðrún Júlía sagði HSSA hafa áhuga á að vera með í fyrirhugaðri atvinnulífssýningu í sumar.
4. Ósk um breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins
Samþykkt að vísa erindinu til byggingar- og skipulagsnefndar.
5. Reiðhöll
Kjartan (formaður Hestamannafélagsins Hornfirðingsins) fór yfir atriði sem snúa að byggingu væntanlegrar reiðhallar. Áætluð stærð reiðhallarinnar er 24 x 55 metrar. Byggingin verður úr stáli og klædd með samlokueiningum. Áfast reiðhöllinni er að auki um 200 m2 hesthús. Kjartan sagði áform um að reiðhöllin verði að öllu leyti í eigu hestamannafélagsins. Reiknað er með að byggingarframkvæmdir byrji í maí nk. Áætlaður byggingarkostnaður er um 34,5 milljónir króna. Sagði hann að fé það sem landbúnaðarráðuneytið lætur renna til þessa verkefnis á Hornafirði nemi15 milljónum króna. Einnig fór Kjartan yfir framlag sveitarfélagsins sem samið hefur verið um svo og aðra fjármögnun. Lagði hann áherslu á að reiðhöllin þurfi að vera skuldlaus þegar verkefninu er lokið að öðrum kosti geti hún ekki rekið sig. Sagði hann hestamannafélagið vera skuldlaust í dag. (Kjartan vék af fundi) Bæjarráð samþykkir að greiða framlag sveitarfélagsins vegna þessa verkefnis fyrir árin 2006 og 2007 þegar verkið hefst og framlag ársins 2008 við verklok í september næstkomandi.
6. Innsend erindi
· Varasjóður húsnæðismála, bréf dag. 29. mars 2007, úthlutun rekstrarframlaga vegna félagslegra íbúða árið 2006. Til kynningar.
· Þjóðskrá, bréf dags. 30. mars 2007, Alþingiskosningar. Til kynningar.
· Samkeppniseftirlitið, bréf dags, 2. apríl 2007, um erindi Galdurs um lénið
www. Hornafjordur.is. Til kynningar.
7. Önnur mál
Engin tekin fyrir.
Fundi slitið kl. 11:40


