Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 417
417. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 28. apríl 2008 kl. 16:00.
Mætt voru: Reynir Arnarson formaður, Árni Rúnar Þorvaldsson og Halldóra B. Jónsdóttir. Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson, Haukur Ingi Einarsson og Ásta Halldóra Guðmundsdóttir.
Reynir bauð fundarmenn velkomna og gengið var til dagskrár:
1. Fundargerðir
· Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar 90. fundur 22. apríl 2008.
Árni spurði hvort eitthvað væri að frétta frá félagsmálaráðuneyti vegna nýs þjónustusamnings um heilbrigðisþjónustu. Hjalti greindi frá samtölum við ráðuneytisstarfsmenn og kom fram að ekki er komin niðurstaða í þau mál. Þá benti Árni á niðurstöðu vinnustaðagreiningar á HSSA sem hann lýsti yfir ánægju með, hún hafi komið vel út fyrir stofnunina.
Fundargerð samþykkt
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 181.fundur 2208.
Fundargerð samþykkt
· Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 81. fundur 2008.
Fundargerð samþykkt
· Menningarmálanefnd Hornafjarðar 100. fundur 2008.
Fundargerð samþykkt
· Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar 99. fundur 2008.
Rætt um iðkendafjölda á vegum USÚ og kom fram ánægja með þann fjölda sem leggur stund á íþróttir á vegum ungmennahreyfingarinnar.
Fram kom að opnunartími sundlaugar að sumri, 1. júní – 25. ágúst, er 07:00 – 20:30 mánudag – föstudags og 09:00 – 18:00 laugardag og sunnudag.
Bæjarráð vill koma á framfæri þakklæti til Umf. Sindra og hrósa félaginu fyrir framtak félagsins á sumardaginn fyrsta.
Fundargerð samþykkt
· Heilbrigðiseftirlit Austurlands, 75. fundur 9. apríl 2008 ásamt bókunum. Til kynningar.
2. Drög að nýjum viðauka með samningi Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og Menningarráðs Austurlands
Ekki voru gerðar athugasemdir við fram lögð drög að viðauka með samningi.
3. Rekstraryfirlit bæjarsjóðs 31. mars 2008
Ásta fór yfir rekstraryfirlitið og svaraði fyrirspurnum.
4. Ársreikningar 2007
Ásta fór yfir ársreikninga sveitarfélagsins, A og B – hluta og svaraði spurningum. Samþykkt að vísa ársreikningum til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
5. Drög að þjónustusamningi um hreinsun holræsa og rotþróa
Haukur Ingi fór yfir drögin, greindi frá fyrirhuguðu skipulagi á hreinsun úr rotþróm og svaraði fyrirspurnum. Bæjarráð samþykkir fram lögð drög.
6. Ósk um umsögn á frumvarpi til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í barnaverndarmálum til 2010, 534. mál - sjá slóð
Vísað til félagsmálaráðs.
7. Innsend bréf og erindi
· Heilbrigðisnefnd Austurlands, 19. apríl 2008, varðar skyldur sveitarfélaga um aðbúnað og eftirlit á leiksvæðum barna.
Vísað til tækni- og umhverfissvið
· Heilbrigðisnefnd Austurlands, 19. apríl 2008,varðar samþykkt um hesthús og önnur gripahús í skipulögðum búfjárhverfum á starfssvæði nefndarinnar.
Vísað til atvinnumálanefndar.
· Heilbrigðisnefnd Austurlands, 19. apríl 2008, verklag við álímingar á númerslausa bíla o.þ.h.
Vísað til tækni- og umhverfissvið.
· Heilbrigðisnefnd Austurlands, 19. apríl 2008,samþykkt um umgengni og þrifnað utanhúss á starfssvæði nefndarinnar nr. 263/2004.
Vísað til umhverfisnefndar og byggingar- og skipulagsnefndar.
· Skipulagsstofnun, tölvubréf dags. 18. apríl 2008, samráðsfundur Skipulagsstofnunar og sveitarfélaga, 8. og 9. maí 2008.
Vísað til starfsmanna að finna fulltrúa á fundinn.
· Samband. ísl. Sveitarfélaga, tölvubréf 23. apríl 2008, kynningarfundur 30. apríl, - mótun sameiginlegrar framtíðarsýnar fyrir grunnskólastarf til 2020.
Vísað til skólaskrifstofu.
8. Önnur mál
Hjalti greindi frá aðalfundi Frumkvöðlaseturs Austurlands þann 9. maí kl. 10:30. Samþykkt að Reynir Arnarson fari með atkvæði sveitarfélagsins á aðalfundinum.
Fundi slitið kl. 17:20


