Fundargerð bæjarráðs 470
470. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 20. júlí 2009 kl. 11:00.
Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs.
1. Fundargerðir
· Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, 765. fundur , 26. júní 2009.
Til kynningar.
2. Ósk um umsagnir á útgáfu rekstrarleyfis
· á útgáfu rekstrarleyfis fyrir gististað fl. II, 11 smáhýsi Náttbóls ehf.
Bæjarráð gerði ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
3. Drög að lóðarleigusamningi við Lionsklúbb Hornafjarðar vegna spildu til skógræktar
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við lóðarleigusamninginn sem slíkan en samþykkir að erindið fari til byggingar- og skipulagsnefndar.
4. Hækkun tryggingagjalds
Farið yfir útsend gögn. Þar kemur fram að með hækkun tryggingagjalds aukist útgjöld bæjarsjóðs um 11,4 millj. miðað við heilt ár og HSSA um 4 millj. Vísað til endurskoðunar á fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.
5. Innsend erindi
· Vinnueftirlitið, bréf dags. 6. júlí 2009, áhættumat starfa og forvarnir vegna öryggis og heilsu starfsmanna.
Vísað til starfsmanna.
· Samband ísl. sveitarfélaga - samninganefnd Launanefndar sveitarfélaga, bréf dags. 8. júlí 2009 kjarasamningar.
Vísað til endurskoðunar á fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.
· Stefán B. Jónsson – Martölvan, tölvupóstur 13. júlí 2009.
Bæjarráð þakkar fyrir bréfið, gerir engar efnislegar athugasemdir við það en vísar að öðru leyti til fyrri svara bæjarstjóra.
· Samband ísl. sveitarfélaga, bréf dags. 15. júlí 2009, v. samninga Myndstefs við grunnskóla.
Vísað til starfsmanna.
6. Önnur mál
· Stefán gerði grein fyrir fundi um málefni fatlaðra í félagsmálaráðuneytinu þann 18. júní sl. sem hann og Maren Sveinbjörnsdóttir sátu fyrir hönd sveitarfélagsins.
Fundi slitið kl. 12:10


