Fundargerð bæjarráðs 477
477. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 28. september 2009 kl. 16:15.
Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson varaformaður, Elín Magnúsdóttir og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs og Ásta H. Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs.
1. Fundargerðir
· Skólanefnd Hornafjarðar,118. fundargerð, 22. september 2009
Björn Ingi velti fyrir fyrir sér akstri með börn í fimleika í Mánagarði. Urðu um þetta mál töluverðar umræður á fundinum. Þá ræddi Björn Ingi tíma sem börn dvelja í skólabíl. Árni velti upp hugmynd um hvort hafa ætti viðmið um tíma o.fl. þætti sem að akstri snúa. Einnig rætt um fyrirhugaðan aukaakstur eftir skólaakstur á fimmtudögum. Björn Ingi spurði m.a. um hvort áhugi hafi komið fram frá foreldrum í dreifbýli vegna þessa aksturs. Stefán sagði að ekki hafi margir svarað bréfi sem sent var út vegna vals á akstursdegi.
Undir þessum lið var gerð grein fyrir undirbúningsvinnu starfsmanna vegna fyrirhugaðra breytinga á húsnæði Lönguhóla. Bæjarráð samþykkir að leggja krónur 300 þúsund til frumhönnunar verksins. Tekið af óráðstöfuðu.
Fundargerð samþykkt.
2. Endurskoðun fjárhagsáætlunar – gögn send í tölvupósti
Ásta fylgdi málinu úr hlaði og sagði að helstu breytingar á fjárhagsáætluninni frá fjárhagsáætlun sem samþykkt var í janúar sl. séu þær að skatttekjur í heild hækka um 16,2 m.kr. og er fyrst og fremst vegna hækkunar á útsvari. Heildarupphæð skatttekna er því um 1.059 m.kr. og tekjur samstæðunnar tæplega 1.273 m.kr.
Útgjöldin til rekstrar aukast hins vegar um 51 m.kr. og munar þar mest um hækkanir á launum um 25 m.kr.og annar rekstrarkostnaður um 23,8 m.kr. Heildarupphæð gjalda samstæðunnar án fjármagnsliða er um 1.354 m.kr. en fjármagnsliðir eru um 87,8 m.kr. Rekstrarniðurstaða er neikvæð um 0,3 m.kr. sem er um 2,2 m.kr. verri afkoma en fyrri áætlun gerði ráð fyrir. Fjárfestingar hækka um 59,7 m.kr. m.a. vegna byggingar sundlaugar sem færðist milli ára og breytinga á Hafnarskóla Handbært fé í ársbyrjun er áætlað um 687,8 m.kr. sem er um 79,3 m.kr. hærra en fyrri áætlun gerði ráð fyrir og handbært fé í árslok er áætlað um 390,8 m.kr. sem er um 13 m.kr. lægra en fyrri áætlun gerði ráð fyrir.
Samþykkt að vísa endurskoðun fjárhagsáætlunar 2009 til bæjarstjórnar.
3. Staða bæjarsjóðs 31.08.09
Ásta fór yfir stöðu bæjarsjóðs og svaraði fyrirspurnum. Fram kom að reksturinn er í jafnvægi.
Einnig fór hún yfir stöðu framkvæmda.
4. Sorpmál í Öræfum
Farið yfir málið. Vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
5. Drög að útboðsgögnum vegna jarðvegsframkvæmda fyrir gervigrasvöll
Farið yfir útboðsgögn og þau samþykkt.
6. Kaffitería í Nýheimum
Hjalti fór yfir málið og greindi frá hugmyndum sem fram hafa komið um breytingar á rekstri teríunnar. Bæjarráð sammála um að sveitarfélagið og stofnanir þess muni ekki koma að rekstri kaffiteríunnar. Bæjarráð gerir hins vegar ekki athugasemd við að farið verði í útboð á rekstri kaffiteríunnar.
7. Málefni Hestamannafélagsins Hornafirðings – gert grein fyrir málinu á fundinum
Hjalti fór yfir stöðu málsins og greindi frá samskiptum við sparisjóðsstjóra Sparisjóðs Vestmannaeyja og starfsmann í landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneyti vegna þess. Samþykkt að taka málið aftur fyrir á næsta fundi bæjarráðs og jafnframt óskað eftir að fulltrúar Hestamannafélagsins Hornfirðings mæti á fundinn.
8. Ljósleiðari í Öræfum – gert grein fyrir málinu á fundinum
Hjalti greindi frá samskiptum við forsvarsmenn verkefnisins og stöðu málsins.
9. Byggingaframkvæmdir á lóð í Stafafellsfjöllum
Hjalti fór yfir málið og greindi frá því að byggingar- og skipulagsnefnd sé með málið til meðferðar. Erindi Ragnhildar Magnúsdóttur, dags. 23.9. 2009, vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
10. Innsend erindi
· Samband ísl. sveitarfélaga, tölvubréf dags. 18. september 2009, nýr verkefnisstjóri í skólamálum.
Vísað til skólanefndar.
· Kvenfélagasamband Íslands, tölvubréf dags. 18. september 2009, ályktanir þingsins til sveitarfélaga.
Til félagsmálaráðs
· Úrvinnslusjóður, bréf dags. 14. september 2009, greiðsla sjóðsins fyrir brennslu á óflokkuðum umbúðum til orkuframleiðslu.
Vísað til starfsmanna.
· Samband ísl. sveitarfélaga, tölvubréf 24. september 2009, forvarnardagurinn 2009.
Vísað til starfsmanna.
· Umhverfisráðuneytið, bréf dags. 22. september 2009, Umhverfisþing 2009.
Vísað til umhverfisnefndar.
11. Önnur mál
· Hjalti greindi frá erindi skólaráðs Grunnskóla Hornafjarðar, bókun á fundi ráðsins þann 28. september 2009.
· Björn Ingi óskar eftir greinargerð Guðjóns Bragasonar um persónukjör.
Fundi slitið kl. 19:10


