Fundargerð bæjarráðs 501
501. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 3. maí 2010 kl. 16:00.
Mættir voru: Árni Þorvaldsson varaformaður, Elín Magnúsdóttir og Halldóra B. Jónsdóttir. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs Ásta H. Guðmundsdóttir fjármálastjóri og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.
1. Fundargerðir
· Almannavarnanefnd Hornafjarðar, 36. fundur, 26. apríl 2010.
Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd Hornafjarðar , 124. fundur, 28. apríl 2010.
Hjalti gerði grein fyrir stöðu mála við ráðningu skólastjóra við Grunnskóla Hornafjarðar og þeirri vinnu sem fram hefur farið og svaraði fyrirspurnum um umsækjendur. (Árni vék af undi undir þessum lið fundargerðarinnar.) Einnig rætt um samræmd próf og rekstur sundlaugar.
Fundargerð samþykkt.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar, 97. fundur, 28. apríl 2010.
Fundargerð samþykkt.
2. Ársreikningur 2009
(Lárus Finnbogason sat fundinn (í síma) undir þessum lið.)
Endurskoðunarskýrsla kynnt á fundinum. Farið yfir ársreikning og að lokinni yfirferð var honum vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
3. Umsögn sveitarfélagsins um byggðaáætlun 2010-2013
Hjalti fór yfir drög að umsögn sveitarfélagsins við byggðaáætlun og þær áherslur sem skipta máli fyrir Suðausturland. Bæjarráð samþykkir að senda fyrirliggjandi drög að umsögn um byggðaáætlun með þeirri viðbót að fjalla einnig um samgöngur á svæðinu.
4. Ósk um umsögn á endurnýjun rekstrarleyfis fyrir Hótel Höfn
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við endurnýjun rekstrarleyfis fyrir Hótel Höfn.
5. Ósk Sambands ísl. sveitarfélaga um að sveitarfélagið taki þátt í rannsóknarverkefni vegna hauggasmyndunar - svarbréf og kostnaðaráætlun
Samþykkt að fá nánari upplýsingar um kostnað við framangreint verkefni. Að öðru leyti er bæjarráð sammála um að farið verði í þessa rannsóknarvinnu.
6. Framkvæmdir við Leikskólann á Lönguhólum
Nefndarmenn ásamt starfsmönnum fóru í vettvangsferð á Lönguhóla. Samþykkt að fá fram kostnað við hugsanlegar framkvæmdir.
7. Plan við Íþróttahús á Höfn
Haukur Ingi afhenti teikningu af opnu svæði við Heppuskóla, íþróttavöll og sundlaug og útfærslu landslagsarkitekts á þessu svæði. Hjalti lýsti ánægju sinni með þetta skipulag. Bæjarráð samþykkir að farið verði í malbikun á bílastæði, þar með talið rútubílastæði, milli íþróttahúss/Heppuskóla og íþróttavallar, sbr. framangreint skipulag. Kostnaður á þeirri framkvæmd er um 8 milljónir. Annað sem gera þarf á svæðinu tekið síðar. Gert er ráð fyrir að um 2 milljónir komi frá öðrum liðum á miðsvæði. Því sem upp á vantar vísað til endurskoðunar á fjárhagsáætlun.
8. Bílastæði við Silfurbraut 7a,b, og c – ósk um þátttöku sveitarfélagsins
Haukur fór yfir málið og greindi frá tilurð þess. Vísað til starfsmanna að vinna frekar í málinu.
9. Innsend erindi
· Heilbrigðiseftirlit Austurlands, bréf dags. 19. apríl 2010, umsögn um deiliskipulag á Lambleiksstöðum.
Til kynningar.
· Ríki Vatnajökuls ehf., tölvubréf dags. 26. apríl 2010, aðalfundboð og tilnefning fulltrúa frá sveitarfélaginu.
Bæjarráð tilnefnir bæjarstjóra sem fulltrúa sveitarfélagsins á aðalfund Ríkis Vatnajökuls sem haldinn verður 11. maí nk.
· Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, bréf dags. 21. apríl 2010, tilkynning um endanlegt framlag vegna nýbúafræðslu 2010.
Til kynningar.
10. Önnur mál
· Stefán greindi frá því að sambýlið í Hólabrekku hefði ekki lengur not af Holti og hafi skilað lyklum af húsinu.
· Reglur um leikskóla - framhaldsumræða af síðasta fundi. Farið yfir þau gögn sem starfsmaður aflaði á milli funda, dags. 27. og 28. apríl. Niðurstaða bæjarráðs er sú að breyta ekki reglum um leikskóla.
· Halldóra greindi frá því að öllum starfsmönnum Ísnets hafi verið sagt upp störfum. Spurði hún hvort sveitarfélagið hafi einhverjar athugasemdir við þetta. Vitnaði hún til samkomulags sem gert var þegar Veiðarfæragerðin var lögð niður og Ísnet tók við rekstrinum. Hjalti sagði að hann muni hafa samband við yfirstjórn Ísnets og óska eftir skýringum. Árni tók undir áhyggjur Halldóru vegna þessarar lokunar.
· Halldóra gerði athugasemd við að gögn hafi ekki borist öllum bæjarstjórnarmönnum, einungis aðalmönnum í bæjarráði.
Fundi slitið kl. 18:50


