Fundargerð Bæjarráðs 227
227. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, miðvikudaginn 23. október 2003, kl 16:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Reynir Arnarson, Elín Magnúsdóttir og Kristín Gestsdóttir sem áheyrnarfulltrúi
Einnig: Helgi Már Pálsson, Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
• Heilbrigðis- og öldrunarráð 45. fundur 16. október 2003.
Fram komu verulegar áhyggjur af fjárhagslegri stöðu stofnunarinnar og áhersla lögð á nákvæmari vinnu við áætlanagerð og eftirfylgni þannig að rekstrarstaða sé ávallt ljós.
Fundargerð samþykkt.
• Menningarmálanefnd Hornafjarðar 50. fundur 15. október 2003.
Aðalmenn í bæjarráði því sammála að félagsmiðstöðin Þrykkjan verði ekki flutt úr Sindrabæ næstu ár. Helgi greindi frá forsendum kostnaðaráætlunar vegna félagsmiðstöðvar, 30 - 60 milljónir eftir hvaða leið yrði fyrir valinu. Kristín taldi ekki útilokað að flytja félagsmiðstöðina þó það yrði ekki næstu árin. Benti hún á laust húsnæði í sveitarfélaginu sem hentað gæti fyrir starfsemina. Elín benti á að lagfæra mætti ýmislegt í Sindrabæ sem bætt gæti aðstöðu fyrir unglingana án þess að það kosti mikið fé.
Ásta gerði grein fyrir uppgjöri Framhaldsskólans í Austur-Skaftafelssýslu við sveitarfélagið vegna sameiginlegs rekstrar í Nýheimum. Lagði hún áherslu á að gera þurfi nýjan samning við menntamálaráðuneytið vegna skólans.
Fundargerð samþykkt.
• Félagsmálaráð Hornafjarðar 99. fundur 14. október 2003.
Fundargerð samþykkt.
• Skólanefnd Hornafjarðar 54. fundur 15. október 2003.
Halldóra spurði um skólamáltíðir. Stefán sagði tilraun í gangi á vegum Kaffi Hornsins en þátttöku litla. Kristín sagði óánægju með að máltíðir í Hafnar- og Heppuskóla skuli ekki vera niðurgreiddar. Einnig rætt um skýrslur Heilbrigðiseftirlits Austurlands. Framkvstj. sagði ekki vera um alvarlegar ábendingar að ræða.
Fundargerð samþykkt.
• Heilbrigðisnefnd Austurlands 42. fundur 16. október til kynningar
Helgi benti á aukna starfsemi eftirlitsins vegna viðamikilla verkefna, væntanlega vegna framkvæmda á Austurlandi. Taldi hann vafasamt að aukinn kostnaður ætti að falla á Sveitarfélagið Hornafjörð vegna þessa. Framkvstj. tækni- og umhverfissviðs falið að kanna þetta mál.
2. Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2003
Ásta fór yfir áætlunina og greindi frá því að það stefndi í að A-sjóður sveitarsjóðs verði rekinn með 50,8 milljón króna halla árið 2003 þegar afskriftir eigna, 31,4 milljón, og reiknaðar lífeyrisskuldbindingar, 13 milljónir, eru reiknaðar með. Ásta leggur áherslu á að staðan sé grafalvarleg enda fari útsvarstekjur lækkandi.
Endurskoðun fjárhagsáætlunar vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.
3. Fjárhagsáætlun 2004
• Gögn afhent á fundi
Ásta fór tekjustofna og nýtingu þeirra. Farið var yfir fyrstu drög að álagningarreglum fyrir árið 2004.
4. Minni háttar breyting á aðalskipulagi í Öræfum
Um er að ræða hluta af jörðinni Freysnes, frístundabyggð í stað landbúnaðarsvæðis sunnan þjóðvegar 1, samkvæmt fram lögðu korti gerðu af Ullu R. Pedersen, dags. 17.09. 2003. Bæjarráð samþykkir tillöguna.
Helgi gerði grein fyrir ýmsum smávægilegum breytingum sem samþykktar hafa verið á árinu. Greindi hann og frá því ferli sem slíkar breytingar fara í gegnum.
5. Fráveitumál
Helgi dreifði gögnum, útdrætti úr forhönnunarskýrslu. Rætt um mismunandi leiðir, kostnað við þær og í hverju kostir og gallar mismunandi leiða lægju. Besti kosturinn er talinn vera hreinsistöð á uppfyllingu suðvestan Ásgarðs með útrás í álinn suðvestur úr Óslandi, leið 2 B í skýrslunni. Bæjarráð sammála þeirri niðurstöðu. Samþykkt að fela tækni- og umhverfissviði áframhaldandi vinnu við áætlun um fráveitumál.
6. Greinargerð forstöðumanns Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar um ráðstöfun stofnfjármuna
Almenn ánægja var með greinargerðina. Kristín lagði til að lagðar verði 7 milljónir 2004 og 7 milljónir 2005 vegna mótframlags ríkisins að sömu upphæð vegna framkvæmda á sviði menningarmála. Samþykkt að vísa tillögum í greinargerðinni sem kalla á fjárútlát til fjárhagsáætlunar 2004.
7. Innsend erindi og til kynningar
• Úthlutun úr styrktarsjóði EBÍ 2003, bréf EBÍ dags. 13. október 2003.
• Staða framlaga vegna sölu félagslegra íbúða oglækkun framlags sveitarfélaga vegna viðbótarlána, bréf Varasjóðs húsnæðismála dags. 15. október 2003.
• Skipulag við söfnun og förgun hjólbarða, bréf Úrvinnslusjóðs dags. 14. október 2003.
• Skipting aflakvóta milli sveitarfélaga, bréf Sjávarútvegsráðuneytis dags. 14. október 2003.
8. Önnur mál
• Framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs lagði fram minnisblað, dags. 22. okt. 2003, vegna tilboðs í leigu á húsnæði fyrir handmenntastofur í Vöruhúsi. Bæjarráð samþykkir að leggja minnisblaðið til grundvallar tilboðs í leigu og felur framkvstj. að senda kaupfélagsstjóra formlegt tilboð.
• Inga Jóna gerði að umtalsefni lausagöngu búfjár með þjóðvegum í sveitarfélaginu. Lagði hún áherslu á að Vegagerðin komi að þessum málum með auknum þunga og um leið að bændur taki þátt í að breyting verði til batnaðar.
Fundi slitið kl. 18:45


