Fundargerð bæjarráðs 512
512. fundur
Fundur í bæjarráði Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,mánudaginn 6. september 2010 og hófst hann kl. 13:00
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Ásgerður Kristín Gylfadóttir, Björn Ingi Jónsson, Ásta Halldóra Guðmundsdóttir, Haukur Ingi Einarsson, Stefán Ólafsson, Árni Rúnar Þorvaldsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs
Dagskrá:
1. 201009009 - Fundargerð stjórnar HSSA 112. fundur
Fundargerð stjórnar HSSA 1. fundur
Fundargerð samþykkt.
2. 201009014 - Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 3. fundur
Bæjarráð leggur áherslu á að umhverfis- og skipulagsnefnd kynni sér fyrri afgreiðslur á vettvangi sveitarfélagsins um Bugðuleiru 6 áður en lokaákvörðun er tekin.
Haukur Ingi gerði grein fyrir hugmyndum um stækkun á núverandi kirkjugarðsstæði sem fjallað hefur verið um í umhverfis- og skipulagsnefnd.
Fundargerð samþykkt.
3. 201009011 - Fundargerð stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga 776. fundur
Árni spurðist fyrir um fund bæjarstjóra og fullrúa bæjarstjórnar í félagsmálaráðuneytinu varðandi ósk sveitarfélagsins um að vera skilgreint sem sérstakt þjónustusvæði.
Ásgerður gerði grein fyrir lauslega grein fyrir fundinum.
Bæjarráð óskaði eftir skriflegri greingerð um fundinn.
Árni ítrekar fyrri bókanir sínar um málefni endurskoðunar á reglum jöfnunarstjóðs sveitarfélaga.
Til kynningar.
4. 201009013 - Fundur um sorpmál í sveitarfélaginu 25. ágúst 2010
Haukur Ingi gerði grein fyrir fundinum. Sagði hann að verið væri að hefja undirbúning að endurnýjun starfsleyfis fyrir sorpurðunarstaðinn í Lóni. Starfmönnum falið að vinna áfram að málinu með UST.
5. 201009012 - Staða bæjarsjóðs 30. júní 2010
Ásta Halldóra fór yfir stöðuna. Kom fram að 17 m.kr. afgangur er af rekstri sveitarsjóðs fyrstu sex mánuðina og 16,7 m.kr. af samstæðunni. Hanbært fé var 305 m.kr. í lok júní. Reksturinn er í samræmi við áætlun.
6. 201008068 - Ósk um umsögn á kaupum á hlut ríkisins í Hlíðarbergi
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við söluna. Starfsmönnum falið að rita bréf þar að lútandi.
7. 200705114 - Önnur mál
Rætt um liðinn önnur mál. Bæjarráð er sammála um að það sé mikilvægt fyrir bæjarfulltrúa að geta fjallað um þau málefni sem kunna að skipta máli fyrir nefndir og ráð sveitarfélagsins, því er mikilvægt að hafa ákveðinn farveg fyrir slík mál. Bæjarráð felur starfsmönnum að leggja til verklagsreglur um liðinn "önnur mál" eða sambærilegt.
Fjallað var um vígslu á ljósleiðarakerfis Fjarskiptafélags Öræfa. Bæjarráð óskar Fjarskiptafélagi Öræfa til hamingju með bætt fjarskiptasamband.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:30


