Fundargerð bæjarráðs 590
590. fundur
590. fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi , 14. maí 2012 og hófst hann kl. 16:15.
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri sviðs
Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri sviðs
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs.
Dagskrá:
| 1. |
1205005F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 25 |
|
|
Fundargerð samþykkt samhljóða. |
| |
|
|
| 2. |
1204001F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 26 - fundarg. send út í tölvupósti |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir samskiptum sínum við lögfræðing um mismunandi eignarhald á vatnstanknum. Starfsmönnum falið að afla upplýsinga í samræmi við umræðu á fundinum. Rætt var um fyrirhugaða uppbyggingu Fosshótela á Hafnarvík - Heppu. Bæjarstjóri upplýsti um fyrirhugaðan fund með Fosshótelum um næstu skref í málinu. Umræða skapaðist um gróðursetningu innan Hafnar, rætt var um að nauðsynlegt væri að vera vakandi yfir útbreiðslu bjarnarklóar sem getur verið hættuleg og útrýma henni, einnig rætt um að útrýma lúpínu innan Hafnar. Ásgerður spurðist fyrir um reglur um atvinnustarfsemi í íbúðarhúsnæði. Starfsmönnum falið að taka saman greinargerð um málið. |
| |
|
|
| 3. |
201205027 - Fundargerð 796. stjórnarfundar Samb. ísl. sveitarfélaga |
|
|
Til kynningar. |
| |
|
|
| 4. |
201205023 - Staða bæjarsjóðs 31. mars 2012 og framkvæmdir 2012 |
|
|
Ásta gerði grein fyrir stöðunni 31. mars 2012. Fram kom að niðurstaðan er betri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir, tekjur og gjöld eru hærri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Haukur Ingi gerði grein fyrir stöðu framkvæmda, fram kom að framkvæmdir eru á áætlun. Einnig voru kynntar hugmyndir að tilfærslu á milli framkvæmdaliða.
|
| |
|
|
| 5. |
201203015 - Menningarmál í Sveitarfélaginu Hornafirði |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir því að unnið er að stefnumótun í atvinnu- og menningarmálum. |
| |
|
|
| 6. |
201006050 - Skipulagsbreytingar í ráðhúsi Hornafjarðar |
|
|
Hjalti upplýsti um mótun á nýju starfi innan stjórnsýslu sveitarfélagsins. Starfsmaðurinn gæti tekið að sér mannauðsmál, gæðamál og upplýsingamál. Taldi hann mikilvægt að undirbúa málið vel, greina þörf á störfum fyrir nýjan starfsmann og fá sem flesta að þeirri vinnu, forstöðumenn, kjörna fulltrúa og íbúa. Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu. |
| |
|
|
| 7. |
201109078 - Kæra fyrir brot á lögum um dýravernd og girðingarlögum |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir stöðu málsins. |
| |
|
|
| 8. |
201205025 - Fjallaskáli - bygging og rekstur |
|
|
Bæjarráð fagnar frumkvæði FAS að uppbyggingu náms í fjallamennsku. Bæjarráð telur rétt að fyrst í stað verði horft til þess húsnæðis sem til er. Jafnframt bendir bæjarráð á hugmyndir ISALP á uppbyggingu aðstöðu til fjallamennsku. |
| |
|
|
| 9. |
201205024 - Ósk um stuðning vegna 10 ára afmælisráðstefnu Háskólasetursins á Höfn |
|
|
Málinu vísað til bæjarstjóra. |
| |
|
|
| 10. |
201203063 - Drög að frumvarpi um fækkun sýslumannsembætti |
|
|
Bæjarráð hvetur stjórn SASS til að taka málið upp. Bæjarráð varar við breytingum sem skerða aðgengi íbúa að þjónustu. |
| |
|
|
| 11. |
201205034 - Ósk um ums. á frumvarpi til laga um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar 689. mál |
|
|
Bæjarstjóra falið að ljúka málinu í samræmi við umræður í bæjarráði. |
| |
|
|
| 12. |
201205030 - Ósk um ums. á útg. rekstrarleyfis fyrir Gistiheimilið Dyngju |
|
|
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins, enda er um að ræða heimagistingu. |
| |
|
|
| 13. |
201205021 - Ósk um ums. á endurútg. rekstrarleyfis fyrir Hótel Jökul |
|
|
Ásta vék af fundi undir þessum lið.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins.
|
| |
|
|
| 14. |
201205028 - Ósk um ums. á útgáfu rekstraleyfis fyrir Birkifell ehf. fl. I |
|
|
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins. |
| |
|
|
| 15. |
201205029 - Ósk um umsögn á útg. tækifærisleyfis fyrir Hátíð sjómanna |
|
|
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins. |
| |
|
|
| 16. |
201204036 - Innanhúsbreytingar í Gömlubúð |
|
|
Málinu frestað til næsta fundar. Boðað verði til aukafundar n.k miðvikudag kl 10:00. |
| |
|
|
| 17. |
201203075 - Mannlífsþáttur Rúv |
|
|
Haukur Ingi gerði grein fyrir málinu. Bæjarráð samþykkir að leggja til 1.500.000.- kr tekið af óráðstöfuðu og óskar eftir því að Fruman ehf leggi til annað eins. |
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00