Fundargerð Bæjarráðs 234
234. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 18. desember 2003, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Reynir Arnarson, og Kristín Gestsdóttir sem áheyrnarfulltrúi
Einnig: Albert Eymundsson, Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Helgi Már Pálsson og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
• Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar 48. fundur 11. desember 2003.
Bæjarráð óskar eftr að sent verði erindi til Lionsklúbbs Hornafjarðar þar sem farið er fram á að klúbburinn taki að sér að ljúka við frágang á minnisvarða um Jón Eiríksson.
Fundargerð samþykkt.
• Félagsmálaráð Hornafjarrðar 102. fundur 9. desember 2003.
Fundargerð samþykkt.
• Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 51. fundur 15. desember 2003.
Bæjarráð samþykkir áorðnar breytingar á fjárhagsáætlun Hornafjarðarhafnar 2004 og vísar til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Fundargerð samþykkt.
• Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar 46. fundur 26. nóvember 2003.
Fundargerð samþykkt.
• Heilbrigðiss og öldrunarráð Hornafjarðar 47. fundur 11. desember 2003.
Bæjarráð tekur undir bókun heilbrigðis- og öldrunarráðs og lýsir áhyggjum af fjárhagslegri stöðu Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands.
Fundargerð samþykkt.
• Menningarmálanefnd Hornafjarðar 52. fundur 10. desember 2003.
Bæjarráð staðfestir þann framgangsmáta sem rætt er um í 3. lið fundargerðarinnar varðandi Jöklasýningu og stofnun Jöklaseturs þ.e. að formaður menningarmálanefndar og og starfsmenn Menningarmiðstöðvar vinni að málinu í samræmi við tillögur Starfshóps um stofnun Jöklaseturs.
Bæjarráð vísar ákvörðun um kaup á ljósmyndasafni Jóhönnu V. Arnbjörnsdóttur til Menningarmiðstöðvar á þann veg að ef stofnunin getur látið kostnaðinn rúmast innan fjárhagsramma 2004 þá verður ekki gerð athugasemd við kaupin. Kristín varar við því fordæmi sem kaup á ljósmyndasafninu gæti gefið.
Fundargerð samþykkt.
• Skólanefnd Hornafjarðar 56. fundur 9. desember 2003.
Fundargerð samþykkt.
• Stjórn Gjafa- og minningarsjóðs Skjólgarðs 20. fundur 11. desember 2003.
Fundargerð samþykkt.
2. Norðurís - aukning hlutafjár
Bæjarráð Hornafjarðar samþykkir að nýta ekki forkaupsrétt að auknu hlutafé í Norðurís.
3. Innsend erindi og til kynningar
• Bréf Félagsmálaráðuneytisins dags. 5. desember 2003 vegna fjárhagsáætlanagerðar.
Til kynningar.
• Bréf Brunamálastofnunar dags. 8. desember 2003 um úttekt á slökkviliði.
Bæjarráð lýsir ánægju með góða umsögn sem Brunavarnir A - Skaftafellssýslu fá í úttekt Brunamálastofnunar. Bæjarstjóri ræddi undir þessum lið um aðstöðu fyrir slökkvibifreið í húsi Slysavarnarfélagsins Kára í Öræfum sem fyrirhugað er að byggja. Bæjarráð felur bæjarstjóra og starfsmönnum að ganga frá samningi við Slysavarnarfélagið Kára í samræmi við tillögur bæjarstjóra sem kynntar voru í minnisblaði dags. 18. des.
Til kynningar.
4. Önnur mál
Helgi Már gerði grein fyrir framvindu jarðhitaleitarverkefnisins, en boranir standa nú yfir í Hoffelli. Bæjarstjóri upplýsti að búið er að undirrita samning við Rarik um þátttöku í verkefninu.
Lífeyrisgreiðslur vegna launa til bæjarfulltrúa og nefndarmanna
Bæjarráð samþykkir að viðmiðunarregla varðandi lífeyrisgreiðslur vegna launa bæjarfulltrúa og nefndarmanna sé sú að greitt verði í Lífeyrissjóð starfsmanna sveitarfélaga og að mótframlag sveitarfélagsins verði 6%. Taka skal tillit til þess ef óskir berast um að greiða í aðra lífeyrissjóði en mótframlag verður það sama.
Reglur sveitarfélagsins um bifreiðamál
Bæjarstjóri kynnti drög að reglum um bifreiðamál. Erindið verður tekið fyrir síðar.
Stefán greindi frá vinnu sem er í gangi varðandi ástand gólfs í Íþróttahúsinu á Höfn.
Fundi slitið kl. 11:35


