Fundargerð bæjarstjórnar 155
155. fundur
Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, mánudaginn 7. júní 2010 kl. 16:00 í Nýheimum.
Mætt voru: Reynir Arnarson, forseti bæjarstjórnar, Elín Magnúsdóttir, Sigurlaug Gissurardóttir, Árni Rúnar Þorvaldsson, Guðrún Ingimundardóttir, Halldóra B. Jónsdóttir og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs, Ásta H. Guðmundsdóttir fjármálastjóri og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.
1. Fundargerðir
· Bæjarráð Hornafjarðar 502. fundur, 11. maí 2010.
Halldóra vildi koma á framfæri að fundarboð vegna þessa fundar bæjarráðs hafi borist henni 14. maí með póststimpli 12. maí. Óskaði hún skýringa á því hvers vegna fundarboð hafi ekki verið póstlögð fyrr en degi eftir fund. Þó óskaði hún upplýsinga um málefni sem snúa að Jökulsárlóni, m.a. vinnu við deiliskipulag svæðisins.
Hjalti tók undir þau orð Halldóru að ósættanlegt sé að fá fundarboð með þeim hætti sem hún lýsir. Sagðist hann munu skoða það mál betur. Hjalti greindi frá vinnu að deiliskipulagi við Jökulsárlón sem og fundum með landeigendum og arkitektum og skoðunarferðum á svæðum við Lónið með þessum aðilum. Vonaðist hann til að deiliskipulag gæti orðið grundvöllur sátta þeirra sem hagsmuna eiga að gæta á umræddu svæði.
Fundargerð samþykkt.
· Bæjarráð Hornafjarðar 503. fundur, 20. maí 2010.
Sigurlaug lýsti yfir ánægju með að hafin skuli vinna að deiliskipulagi við Jökulsárlón. Þá lýsti hún ánægju með stöðu Humarhátíðar sem 3ju vinsælustu bæjarhátíðar landsins. Sigurlaug lýsti yfir ánægju með þá friðun vegsvæða fyrir ágangi búfjár sem nú er í burðarliðum. Einnig benti hún á að á morgun eru tvö ár frá stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs. Lýsti hún yfir ánægju með vinnu við verndaráætlun vegna þjóðgarðsins.
Hjalti tók undir orð Sigurlaugar um þjóðgarðinn. Þá greindi hann frá samningum við landeigendur um upplýsingagjöf vegna þjóðgarðsins. Einnig að til standi að formfesta innan tíðar samning við þjóðgarðinn um rekstur jöklaseturs.
Fundargerð samþykkt.
· Bæjarráð Hornafjarðar 504. fundur, 7. júní 2010.
Guðrún ræddi fundargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs og óskaði eftir stefnu framsóknarmanna um skýli við Mjallhvít, þar sem þeir væru nú með meirihluta í bæjarstjórn en hefðu ekki verið með neitt á stefnuskrá um dvalarheimilið í nýafstöðnum kosningum.
Reynir sagði þetta ekki hafa verið á stefnuskrá framsóknarmanna en upplýsti að málið muni verða á dagskrá
Fundargerð samþykkt.
· Bæjarstjórn Hornafjarðar 154. fundur 6. maí 2010, áður samþykkt.
2. Ársreikningar sveitarfélagsins 2009 - síðari umræða
Bæjarstjóri gerði grein fyrir að reikningar hafi ekki tekið neinum breytingum frá fyrri umræðu og lagði til að þeir yrðu samþykktir.
Árni sagði ársreikningana sýna góða stöðu og traustan rekstur. Þetta sé ekki síst að þakka góðri samstöðu bæjarfulltrúa þvert á pólitískar línur sem og samstarf við starfsmenn. Þakkaði hann fyrir hönd Samfylkingarinnar gott samstarf í bæjarstjórn.
Björn Ingi lagð fram eftirfarandi bókun sjálfstæðismanna:
Bókun Sjálfstæðismanna vegna ársreikninga fyrir árið 2009
Það ætti engum að dyljast að framundan eru erfiðir tímar þó peningaleg staða sveitarfélagsins sé vissulega góð eins og fram kemur í framlögðum ársreikningum. Lækkun á handbæru fé á milli áranna 2008 og 2009 nam 285 milljónum króna. Árið 2009 voru skatttekjur sveitarfélagsins án jöfnunarsjóðs 752 milljónir, aðrar tekjur 433 milljónir og jöfnunarsjóður 388 milljónir króna. Jöfnunarsjóður er því 25% af tekjum. Mörg teikn eru á lofti um að jöfnunarsjóður eigi eftir að dragast verulega saman á næsta og þarnæsta ári. Langstærsti einstaki málaflokkur sveitarfélagsins er fræðslu og uppeldismál og tekur hann til sín 662 milljónir króna, sem er 53,1% af heildarskatttekjum sveitarfélagins árið 2009. Á árinu 2008 var þetta hlutfall 48,1%.
Það er skoðun okkar Sjálfstæðismanna að betra væri að fara strax ofan í rekstur einstakra málaflokka og skoða þá með hagræðingu í huga heldur en að þurfa að fara í sársaukafullan niðurskurð að nokkrum árum liðnum.
Við bæjarfulltrúar sjálfstæðisflokksins ítrekum fyrri bókanir um fjárhagslega stöðu sveitarfélagsins og teljum að með samstilltu átaki væri hægt að hagræða án þess að skerða þjónustu eins og rekstur HSSA er dæmi um. Sérstaklega er þetta mikilvægt á tímum þegar lægð er í atvinnulífi í landinu.
Við viljum að lokum þakka öllum starfsmönnum sveitarfélagsins fyrir samstarfið og vel unnin störf á kjörtímabilinu.
Halldóra Bergljót Jónsdóttir
Björn Ingi Jónsson
Hjalti kvaddi sér hljóðs og þakkaði fyrir gott samstarf í bæjarstjórn.
Reynir þakkaði bæjarstjórn fyrir samstarfið á liðnu kjörtímabili.
Ársreikningur borinn undir atkvæði og samþykktur samhljóða
3. Fyrirspurnir
Engar fyrirspurnir bárust.
Í lok fundar kvaddi bæjarstjóri sér hljóðs og þakkaði bæjarfulltrúum Elínu Magnúsdóttur, Sigurlaugu Gissurardóttur og Halldóru B. Jónsdóttur fyrir framlag þeirra til málefna sveitarfélagsins fyrir þau kjörtímabil sem þær hafa setið sem aðalmenn í bæjarstjórn.
Elín þakkaði fyrir samstarfið bæði bæjarfulltrúum og starfsfólki í ráðhúsi. Þá óskaði hún nýkjörnum bæjarfulltrúum til hamingju.
Sigurlaug þakkaði öllum bæjarfulltrúum fyrir einstaklega gott samstarf. Þetta hafi verið ánægjulegur og lærdómsríkur tími. Þá þakkaði hún nefndarmönnum sem hún hafi starfað með. Einnig þakkaði hún starfsmönnum fyrir gott samstarf. Sigurlaug óskaði nýrri bæjarstjórn velfarnaðar.
Halldóra sagði þetta vera í síðasta sinn sem hún kæmi fram sem fulltrúi í bæjarstjórn. Hún hafi fyrst verið kjörin varabæjarfulltrúi 1986. Fyrst hafi hún verið sem bæjarfulltrúi 1994. Sagðist hún hafa átt gott samstarf við samferðamenn í bæjarstjórn. Hún greindi frá mörgum verkum sem unnin hafa verið þann tíma sem hún hefur starfað sem bæjarfulltrúi, bæði byggingarframkvæmdum og fjölmörgum öðrum málum. Þá ræddi hún byggingu Nýheima sérstaklega og sagðist stolt af þeirri framkvæmd, bæði hugmyndafræðinni að baki Nýheimum sem og byggingunni sjálfri. Halldóra sagðist kveðja vettvang sveitarstjórna sátt og þakkaði fyrir gott samstarf við sveitarstjórnarmenn og starfsmenn. Þá óskaði hún nýrri bæjarstjórn velfarnaðar sem og öllum íbúum sveitarfélagsins.
Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl. 17.00


