Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi 2012-2030 við Reynivelli II

Bæjarstjórn auglýsir hér með tillögu að breytingu á Aðalskipulagi

Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í að skilgreina verslunar- og þjónustusvæði að Reynivöllum II í Sveitarfélaginu Hornafirði.

Breytingartillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofum að Hafnarbraut 27 frá og með fimmtudeginum 18. janúar nk. til mánudagsins 5. mars 2018 og hjá Skipulagsstofnun að Borgartúni 7b 105 Reykjavík.

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi 2012-2030.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna til mánudagsins 5. mars 2018. Skila skal athugasemdum á bæjarskrifstofur Hornafjarðar, Hafnarbraut 27.

 

Björn Ingi Jónsson, bæjarstjóri