Auglýsing um íbúakosningu um aðal- og deiliskipulag um þéttingu byggðar Innbæ

9.6.2023

Íbúakosningin fer fram dagana 19. júní til og með 10. júlí.

Kosið verður í Ráðhúsi Hornafjarðar virka daga frá 09:00 – 12:00 og frá 13:00 - 15:00.

Þeir sem þurfa að kjósa í póstkosningu skv. 10 gr. reglugerðar um íbúakosningu sveitarfélaga þurfa að biðja um að fá send kjörgögn fyrir 2. júlí nk. á netfangið ibuakosning@hornafjordur.is

Yfirkjörstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar

Vignir Júlíusson formaður kjörstjórnar

Hjördís Skírnisdóttir

Kristján S. Guðnason