Endurskoðun aðalskipulags

1.6.2023

Ert þú búin/n að segja þína skoðun?

Íbúar eru hvattir til að koma á framfæri sínum sjónarmiðum og hugmyndum um viðfangsefni endurskoðunar aðalskipulags með því að svara meðfylgjandi vefkönnun. Vefkönnunina má finna á íslensku, ensku og pólsku. Frestur er til og með 11. júní.

Könnunin er birt í framhaldi af birtingu verkefnislýsingar fyrir endurskoðun aðalskipulags sem finna má á verkefnisvefnum hornafjorduradalskipulag.is. Svör við könnuninni verða höfð til hliðsjónar við mótun stefnu og skipulags í þéttbýli og dreifbýli.

Íbúar eru jafnframt hvattir til að deila könnuninni með öllum þeim sem gætu haft áhuga eða hagsmuna að gæta.