Hafðu áhrif á þína heimabyggð

Endurskoðun aðalskipulags

10.5.2023

Vilt þú hafa áhrif á umhverfis- og skipulagsmál í þinni heimabyggð? Nú er tækifærið til að kynna sér um hvað verður fjallað við endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins og senda inn ábendingar sem varða það verkefni. 

Kynntu þér málið á verkefnisvefnum og í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar! Umsagnarfrestur er til 10. júní 2023.

Kynning lýsingarinnar er skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga og 14. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana.