Íbúakosningar 19. Júní – 10. Júlí í Sveitarfélaginu Hornafirði - Skráning námsmanna á Norðurlöndunum á kjörskrá

9.5.2023

Þjóðskrá auglýsir að námsmenn þurfi að skrá sig á kjörskrá fyrir föstudaginn 12. maí. 

Vegna íbúakosninga í Sveitarfélaginu Hornafirði sem fram fara frá 19. júní til 10. júlí nk. geta þeir námsmenn á Norðurlöndunum sem áttu síðast skráð lögheimili á Íslandi í umræddu sveitarfélagi sótt um að vera teknir á kjörskrá. Tilkynningu frá Þjóðskrá má finna hér.