Menningarverðlaun 2024

19.1.2024

Atvinnu- og menningarmálanefnd óskar eftir tillögum að verðlaunahafa menningarverðlauna sveitarfélagsins 2024 fyrir árið 2023

Verðlaunin eru veitt einstaklingi, stofnun eða samtökum sem viðurkenning fyrri eftirtektarvert framtak á sviði lista og menningar árið 2023. Hlutverk verðlaunanna er að vera almenn hvatning til eflingar menningar og listastarfs í sveitarfélaginu.

Frestur til tilnefningar er 15. febrúar 2024 og sendist tilnefningin ásamt rökstuðningi á: eyrunh@hornafjordur.is