Stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Ingólfshöfða í kynningu

14.9.2018

Drög að stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Ingólshöfða eu  komin í kynningu og verðu opinn kynningarfundur vegna þeirra þann 10. október n.k. í Hofgarði í Öræfasveit klukkan 17:00 – hvetjum alla sem hafa áhuga að mæta.

Undanfarið hafa fulltrúar Umhverfisstofnar, réttahafa lands og fulltrúi sveitarfélags Hornafjarðar unnið að gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir friðlandið í Ingólfshöfða. Drög að áætluninni er hér með lögð fram til kynningar.

Ingólfshöfði var friðlýstur sem friðland árið 1974 og er markmið friðlýsingarinnar að varðveita og viðhalda náttúrulegu ástandi svæðisins og þá sérstaklega því fuglalífi sem finnst í höfðanum.

Stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Ingólfshöfða er ætlað að vera stefnumótandi skjal, unnið í samvinnu við réttahafa lands og sveitarfélag og er hugsað sem stjórntæki til að móta framtíðarsýn svæðisins. Markmiðið með gerð hennar er að leggja fram stefnu um verndun Ingólfshöfða og hvernig viðhalda skuli verndargildi svæðisins þannig að sem mest sátt ríki um. Í áætluninni er lögð fram stefnumótum til 10 ára, ásamt aðgerðaáætlun til fimm ára.

 Hér að neðan má sjá stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Ingólfshöfða auk auglýsingar um friðlýsingu svæðisins sem gerð var árið 1974.

https://ust.is/einstaklingar/nattura/verndaraaetlanir-i-kynningu/fridlandid-i-ingolfshofda/

 Þann 10. október n.k verður haldinn opinn kynningarfundur í Hofgarði í Öræfasveit þar sem áhugasömum gefst tækifæri til að spyrja spurninga og koma með ábendingar og athugasemdir varðandi áætlunina.

Fundurinn hefst klukkan 17:00 og stendur til klukkan 19:00.

Frestur til að skila inn athugasemdum og ábendingum er til 25.okt nk. 
Hægt er að skila inn athugasemdum á heimasíðu Umhverfisstofnunar, 

með tölvupósti á netfangið ust@ust.is eða með því að senda póst til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík,

Nánari upplýsingar veitir Þórdís Björt Sigþórsdóttir, 

thordis.sigthorsdottir@umhverfisstofnun.is eða í síma 591-2000.