Umsóknir um styrki Atvinnu- og rannsóknarsjóðs 2020

20.11.2019

Atvinnu- og menningarmálanefnd Hornafjarðar auglýsir eftir umsóknum í atvinnu- og rannskókarsjóð Sveitarfélagsins Hornafjarðar.

Sjóðurinn veitir styrki til verkefna sem efla byggð eða atvinnu í sveitarfélaginu án þess að skekkja samkeppnisstöðu starfandi fyrirtækja á svæðinu. Sjóðnum er ætlað að veita styrki til atvinnuþróunnar, nýsköpunar og rannsókna. Atvinnu- og menningarmálanefnd Hornafjarðar hefur umsjón með sjóðnum.
Þeir sem hafa lögheimili í sveitarfélaginu og hafa þar fasta búsetu geta sótt um styrk í sjóðinn. 

Nánari upplýsingar eru veittar í Menningarmiðstöð Hornafjarðar Litlubrú 2 eða á heimasíðu sveitarfélagsins, www.hornafjordur.is undir reglur og samþykktir.
Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2020, sótt er um í gegnum íbúargátt á heimasíðu sveitarfélgsins: ibuagatt.hornafjordur.is/

Eyrún Helga Ævarsdóttir forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjar.