Auglýsing um skipulag - Nýtt deiliskipulag Skarðshólar

15.4.2026

Bæjarstjórn Hornafjarðar ákvað á 347. fundi sínum að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi Skarðshólar skv. 41. gr. skipulagslaga. 

Skipulagssvæðið sem er 2,5 ha að stærð tekur yfir byggingarreit og aðkomu að svæðinu en jörðin sjálf er 57,1 ha að stærð. Deiliskipulagið er unnið í samræmi við Aðalskipulag Hornafjarðar 2012-2030 þar sem svæðið er skilgreint sem landbúnaðarland. Skilgreindur er byggingarreitur fyrir íbúðarhúsi og útihúsi auk aðkomu að svæðinu.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eða vilja gera athugasemdir er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna á auglýsingatíma frá og með 15. apríl til 30. maí 2026 og skal þeim skilað í gegnum skipulagsgáttina undir máli nr. 438/2026.

Gunnlaugur Róbertsson, skipulagsfulltrúi Sveitarfélagsins Hornafjarðar