Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu

Nýheimum, 780 Hornafirði

Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu býður upp á almennt bóknám en auk þess er lögð áhersla á starfsnám í samræmi við eftirspurn hverju sinni, fullorðinsfræðslu og símenntun.

Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu er um 200 nemenda skóli. Í skólanum er lögð áhersla á að þjóna þörfum nemenda á persónulegan hátt með sveigjanlegu námsframboði. Fjarnám og tölvutengt nám er mikilvægur hluti náms við skólann og fer sífellt vaxandi.

Skólinn er í samstarfi við aðra framhaldsskóla um fjarnám. Markmið er fyrst og fremst að bæta aðgengi nemenda að eins fjölbreyttu námsframboði og kostur er og tryggja þeim sem bestan undirbúning undir frekara nám eða störf.

Skólinn var stofnaður árið 1987 af ríkinu og sveitarfélögum í Austur-Skaftafellssýslu.

Skólameistari framhaldsskólans er Lind Völundardóttir.