Uppbygging íþróttamannvirkja

Nú er unnið að því að endurskoða heildaruppbyggingu íþróttamannvirka til lengri tíma og mögulega áfangaskiptingu þeirra er til framkvæmda kemur. Í því tilliti er mikilvægt að hafa virka upplýsingagjöf og samráð við bæjarbúa.

Hér má finna  gögn og skýrslur sem þegar hafa verið unnar og byggt er á í þeirri hugmyndavinnu sem nú á sér stað.  Einnig eru hér nokkrar hugmyndir að mannvirkjum út frá fyrirliggjandi gögnum. 

Sérstaklega skal tekið fram að ekki hefur verið tekin nein ákvörðun um hvað gera skal eða hvenær heldur er verið að reyna að vinna að málið í opnu vinnuferli. Á endanum er það sveitarstjórn sem tekur ákvörðun um hvaða framkvæmdir skal farið í, áfangaskiptingu þeirra og forgangsröð. 

Fólk er hvatt til að senda hugmyndir og athugasemdir til sveitarfélagsins á netfangið thorgunnur@hornafjordur.is.   

Skýrslur og gögn

Hugmyndavinna

Fundargerð frá 17. janúar

Fundargerð frá 24. janúar