Tómstundastyrkur
Innskráning vegna tómstundastyrks
Reglur um tómstundastyrk.
Substudy for after scool activities, information - directions in english
Dodatek na zajęcia pozalekcyjne, informacja - kierunki po polsku
Subvencija za van školske aktivnosti, informacije - smjerovi na hrvatskom jeziku
Leiðbeiningar um nýtingu tómstundastyrks
Um nýtingu tómstundastyrks/ frístundastyrks
Sveitarfélagið Hornafjörður veitir foreldrum barna 6-18 ára
sem eiga lögheimili í sveitarfélaginu,
tómstundastyrk að upphæð kr. 50.000 á ári. Tómstundastyrkur er
veittur vegna þátttöku barna í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi, þar með
talið nám í Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu. Með
frístundastyrknum má greiða að fullu, eða hluta fyrir íþrótta-, lista- og/eða
aðra
tómstundastarfsemi sem samþykkt hefur verið inn í Nora
tómstundastyrkjakerfi sveitarfélagsins. En öll íþrótta- og tómstundatilboð
þurfa að uppfylla reglur um tómstundastyrk til þess að fá skráningu þar.
Allar deildir Umf. Sindra eru með sitt íþróttaframboð skráð í kerfið og hafa foreldrar barna sem stunda íþróttaæfingar notað kerfið til að nýta tómstundastyrkinn þegar þeir greiða æfingagjöld til félagsins. Nú færast skólagjöld við Tónskólann einnig inn í Nora tómstundakerfið svo foreldrar nemenda við skólann þurfa að skrá sig þar inn og velja að nýta tómstundastyrkinn til niðurgreiðslu á skólagjöldunum
Dæmi:
Ekki er lengur hægt að greiða í banka og framvísa greiðslukvittun í afgreiðslu ráðhússins. Ef foreldrar gleyma að haka við nýtingu frístundastyrks/tómstundastyrks missa þeir þar með af tækifæri til að nýta styrkinn í það sinn því Nora tómstundakerfið býður ekki upp á leiðréttingu heldur þarf að nýta styrkinn seinna fyrir annað námskeið.
Foreldrum er bent á að ónýttir styrkir fyrnast um hver áramót.