Sumarfrístund á Höfn
Leikur, gleði ævintýri
Sumarfrístund er starfrækt í Kátakoti milli kl. 13:00 - 16:00 þær sex vikur sem leikjanámskeiðin hjá Sindra standa yfir.
Í sumarfrístundinni er lögð sérstök áhersla á frjálsan leik, sem rannsóknir sýna að er eitt mikilvægasta þroskatæki barna. Við viljum skapa öruggt og skapandi umhverfi þar sem börnin fá að njóta sín og læra í gegnum leik.
Auk frjáls leiks verður alltaf eitthvað spennandi í gangi – við fáum skemmtilegar heimsóknir, förum í ævintýraferðir og könnum nánasta umhverfi okkar með forvitni og gleði. Við ætlum að rannsaka bæinn okkar, læra um hann og tengjast honum á nýjan hátt. Þá tekur sumarfrístundin þátt í ferðum Menningarmiðstöðvarinnar þegar tækifæri gefst.
Komdu í sumarfrístund – þar sem leikurinn og upplifanirnar ráða ferðinni!
Hafa samband við emilmoravek@hornafjordur.is ef það eru einhverjar spurningar.
Hægt er að skrá börn í Sumarfrístund á sportabler
www.sportabler.com/shop/hornafjordur