Íþróttavika Evrópu

Íþróttavika Evrópu verður haldin dagana 25.-28.september.   

Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) er haldin víðsvegar um álfuna í september ár hvert. Markmið íþróttavikunnar er að kynna íþróttir og hreyfingu fyrir almenningi í Evrópu og er hún ætluð öllum óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Sérstök áhersla er lögð á að höfða til grasrótarinnar og að hvetja Evrópubúa til að sameinast undir slagorðinu #BeActive til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi.

Hér á Höfn verður boðið upp á frábæra dagskrá hér í sveitarfélaginu og eru allir hvattir til að hreyfa sig, ganga eða hjóla í vinnu, fara í göngu- og hjólatúra en einnig að taka þátt í þeim viðburðum sem boðið verður upp á. Til að mynda ætla íþróttafélögin og íþróttafólkið okkar að bjóða upp á fullt af opnum tímum og verða þeir auglýstir nánar á vefsíðu sveitarfélagsins, Facebook og í Eystrahorni á næstu dögum. Hér eru nánari upplýsingar um netsíður íþróttavikunnar. Hægt er að skoða verkefni nánar á fésbókarsíðu verkefnisins.

Hægt er að nálgast dagskánna á .pdf formi HÉR
The schedule for European Week of Sport is available in English HERE.

EVS03