Breyting á aðalskipulagi

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti þann 14. október 2021 að gera breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2021-2030 fyrir Heppuveg 6.

Megin markmið með breytingunni er að M1 miðsvæði stækkar og Heppuvegur 5 og hluti Heppuvegar 6 verða á miðsvæði í stað athafnasvæðis. Með breyttri landnotkun verður heimilt að hafa á lóðunum matvælaframleiðslu/iðnaðarframleiðslu, veitingasölu og listsýningar auk íbúða. Tillagan var auglýst frá 3. ágúst til 14. september 2021. Umsagnir bárust frá Minjastofnun og Umhverfisstofnun. 

Breytingin hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta óskað eftir upplýsingum hjá starfsmönnum sveitarfélagsins.

Fyrir hönd bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Hornafjarðar.

Matthildur Ásmundardóttir

bæjarstjóri