Breyting á aðalskipulagi

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti þann 14. október 2021 að gera breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2021-2030 fyrir Borgarhöfn 2-3 Suðursveit.

Megin markmið með breytingunni breyta landnotkun á hluta lögbýlisins úr landbúnaðarsvæði í verslunar- og þjónustusvæðiá 5 ha. svæði. Tillagan var auglýst frá 16. ágúst til 27. september 2021. Umsagnir bárust frá Minjastofnun, Veðurstofunni og Umhverfisstofnun.

Breytingin hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta óskað eftir upplýsingum hjá starfsmönnum sveitarfélagsins.

Fyrir hönd bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Hornafjarðar.

Matthildur Ásmundardóttir

bæjarstjóri