Breyting aðalskipulags, Heppuvegur – Niðurstaða bæjarstjórnar

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti þann 8. febrúar 2024 breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breytingin felur í sér að sértækum ákvæðum fyrir miðsvæði M1 er bætt við texta varðandi heimild til gistingar.

Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillöguna og niðurstöðu bæjarstjórnar geta snúið sér til umhverfis- og skipulagsstjóra sveitarfélagsins.

Einnig er hægt að kynna sér málið í skipulagátt: www.skipulagsgatt.is, málsnúmer 149/2024.

Umhverfis- og skipulagsstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar