Breyting aðalskipulags, Leiðarhöfði - Niðurstaða bæjarstjórnar

Bæjarstjórn samþykkti þann 14. desember 2023 breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 í samræmi við 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Helstu markmið breytingarinnar eru að breyta landnotkun á Leiðarhöfða að hluta úr íbúðarsvæði, ÍB4, og óskilgreindu opnu svæði í nýtt opið svæði, OP5. Þar verður skilgreint útivistar- og hátíðarsvæði þar sem heimilt verður að reisa þjónustu og menningarhús.

Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillöguna og niðurstöðu bæjarstjórnar geta snúið sér til umhverfis- og skipulagsstjóra sveitarfélagsins.

Umhverfis- og skipulagsstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar