Deiliskipulag Hjáleigu og Flatatúns í Öræfum

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti þann 14. desember 2023 að auglýsa deiliskipulag Hjáleigu og Flatatúns í Öræfum í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Helstu markmið tillögunnar eru að skipta landi Hjáleigu upp í 6 lóðir og landi Flatatúns upp í 7 lóðir, setja skilmála fyrir uppbyggingu á lóðunum, m.a. afmarka byggingarreiti, skilgreina aðkomu og bílastæði.

Tillagan er aðgengileg í skipulagsgátt, www.skipulagsgatt.is,mál nr. 7/2024 .

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eða vilja gera athugasemdir er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögunina á auglýsingatíma frá 10. janúar til 21. febrúar 2024 og skal þeim skilað í gegnum skipulagsgáttina.

Umhverfis- og skipulagsstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar