Grenndarkynning - Stafafellsfjöll 37

Óskað er eftir breytingum á lóðamörkum lóðar Stafafellsfjöll 37 án breytinga á deiliskipulagi. Samningur milli landeigenda vegna stækkunar liggur fyrir.

Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að lóðamörkum verði breytt án breytingar á deiliskipulagi. Breytt lóðamörk verði grenndarkynnt fyrir aðliggjandi lóðarhöfum skv. 44. gr. skipulagslaga.
Lóðablað má nálgast hér

Lóðarhöfum gefst kostur á að gera athugasemdir við fyrirhugaðar framkvæmdir til 27. nóvember 2023.  

Athugasemdir skulu berast á netfangið skipulag@hornafjordur.is


Virðingarfyllst
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagsstjóri
Sveitarfélagsins Hornafjarðar